Nguyen algengasta ættarnafnið á Íslandi

Jón Gnarr hafði spurt um algengustu ættarnöfnin á Íslandi.
Jón Gnarr hafði spurt um algengustu ættarnöfnin á Íslandi. mbl.is/Karítas

Nguyen er algengsta ættarnafnið á Íslandi.

Þetta kemur fram í svari Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Jóni Gnarr.

Fyrirspurn Jóns var svohljóðandi: Hver eru algengustu ættarnöfn, íslensk og erlend, sem eru skráð í þjóðskrá og hversu margir bera hvert ættarnafn?

Í svari Þorbjargar kemur fram að 615 manns bera ættarnafnið Nguyen.

Þar á eftir koma:

  • Blöndal (472)
  • Hansen (458)
  • Thorarensen (354)
  • Rodriguez (351)
  • Andersen (329)
  • Santos (321)
  • Nielsen (317)
  • Garcia (291)
  • Olsen (289)

Hér má sjá lengri lista yfir algengustu ættarnöfnin.

Ekki greinarmunur

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands er umrædd vinnsla ekki fullkomlega nákvæm þar sem ekki er unnt að taka einungis ættarnöfn úr grunni þjóðskrár.

Grunnurinn er settur saman úr ættarnöfnum og kenninöfnum sem taka til kenningar til foreldra. Þó megi ætla að listinn sé nokkuð nákvæmur.

Þjóðskrá Íslands heldur ekki utan um skráningu á uppruna ættarnafna og gerir því ekki greinarmun á íslenskum og erlendum ættarnöfnum.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands styðst stofnunin við skrána Ættarnöfn á Íslandi á vef Árnastofnunar til að afla upplýsinga um hvort nöfn hafi stöðu ættarnafns hér á landi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka