Afhending íslensku hljóðbókaverðlaunanna, Storytel Awards 2025, fór fram fyrr í kvöld en þau voru veitt í fimm flokkum auk þess sem veitt voru sérstök heiðursverðlaun.
Dómnefndir höfðu það að leiðarljósi að líta heildstætt á hvert verk þar sem vandaður lestur á góðu ritverki getur bætt miklu við upplifun lesandans. Því voru ekki aðeins rithöfundar verðlaunaðir heldur einnig lesarar hljóðbókanna.
Að undangenginni almenningskosningu í janúar fóru tilnefndar bækur fyrir sérstakar fagdómnefndir.
Elva Ósk Ólafsdóttir, leikkona og lesari hjá Storytel, var formaður þeirra en dómnefndir skipuðu auk hennar þau Árni Árnason og Ingibjörg Iða Auðunardóttir fyrir skáldsögur og glæpa- og spennusögur.
Aníta Briem, Kristjana Mjöll Hjörvar Jónsdóttir og Vera Illugadóttir fyrir ljúflestur og rómantík og óskáldað efni, og þau Jóhann Sigurðarson, Rebekka Sif Stefánsdóttir og Bragi Páll Sigurðarson fyrir börn og ungmenni.
Valskan eftir Nönnu Rögnvaldardóttur var valin besta skáldsagan en um lestur sér Hildigunnur Þráinsdóttir.
„Sagan um prestsdótturina Völsku er vel stíluð og lifandi saga, jafnframt merkileg heimild byggð á lífi formóður höfundar. Með grípandi frásagnarmáta sínum bíður Nanna okkur með í ferðalag um heim harðrar lífsbaráttu en líka ástar og þrautseigju, á tímum þar sem oft var lítið pláss fyrir allt litróf mannlegra tilfinninga.
Persónugallerí sögunnar er bæði litríkt og eftirminnilegt, hvort sem um er að ræða aðal- eða aukapersónur, og lesandi á auðvelt með að setja sig í spor hinnar einstöku og mannlegu Völsku. Það er unun að heyra hvernig Nanna notar dýrmæt og gömul orð sem eru smám saman að hverfa úr okkar tungumáli.
Framúrskarandi lestur Hildigunnar Þráinsdóttur setur svo punktinn yfir i-ið. Með góðum tilbrigðum, áheyrilegum og áreynslulausum lestri, kemur hún þessari stóru sögu afar vel til skila,“ segir í umsögn dómnefndar.
Dætur regnbogans eftir Birgittu H. Halldórsdóttur var valin besta ljúflestrarbókin í lestri Svandísar Dóru Einarsdóttur. Um bókina segir dómnefndin meðal annars að hún hafi borið af í þessum flokki.
„Fallegt og flæðandi tungumál og hrífandi saga sem er bæði hjartnæm og rómantísk og á sama tíma jarðbundin. Einnig er mjög skemmtilegt hvernig persónur úr öðrum bókum hennar fléttast inn og út. Fallegur og hlýr boðskapur sem sæmir vel ljúflestursbókmenntum. Bókin er einnig afar vel lesin og hæfir sögunni vel.“
Í flokki barna- og ungmennabóka bar Sveindís Jane - saga af stelpu í fótbolta, eftir Sveindísi Jane Jónsdóttur, sigur úr býtum en hana les Álfrún Helga Örnólfsdóttir.
„Hetjusaga ungrar stúlku með einstakan bakgrunn sem hefur þurft að yfirstíga miklar áskoranir í einkalífi sem og samfélaginu. Þrátt fyrir allt þetta mótlæti yfirstígur hún alla erfiðleika og stendur uppi sem sigurvegari, innan vallar sem og utan.
Bókin gefur einstaka innsýn inn í annan menningarheim og sýnir fjölbreytileika íslensks samfélags. Einlæg og skemmtileg frásögn með hlýjum og notalegum lestri. Saga af mótun og áskorunum sterkrar stúlku og frábærrar fyrirmyndar,“ segir dómnefnd í umsögn sinni.
Morðin í Dillonshúsi, eftir Sigríði Dúu Goldsworthy, fékk verðlaun í flokknum óskáldað efni en hún er í lestri Birgittu Birgisdóttur og Sigríðar Dúu sjálfrar.
„Sagan hrífur lesandann frá byrjun. Höfundur gerir lífshlaupi forfeðra sinna skil á einstaklega mannlegan og áreynslulausan hátt og snertir djúpt. Einnig gefur sagan fallega innsýn inn í tíðarandann. Þeir tragísku atburðir sem titillinn ber með sér, verða næstum aukaatriði og þá finnst okkur að ætlunarverki höfunda hafi sannarlega verið náð - að heiðra minningu forfeðra sinna.
Bókin er afar vel lesin af Birgittu Birgisdóttur og dansar þessa fínu línu að gera nóg, en leyfa samt myndum að vakna sjálfum í huga hlustanda,“ segir dómnefnd um verkið.
Heim fyrir myrkur, eftir Evu Björgu Ægisdóttur, var valin besta glæpa- og spennusagan.
Lesarar hennar eru þær Aníta Briem og Berglind Alda Ástþórsdóttir en í umsögn dómnefndar segir að Eva Björg sýni enn og aftur einstaka hæfni sína í að byggja upp andrúmsloft þar sem grunsemdir kraumi undir yfirborðinu og sannleikurinn komi sífellt á óvart.
„Frábær flétta og trúverðugar persónur. Með lifandi sögusviði og ísmeygilegri frásagnaraðferð leiðir hún okkur í gegnum flókið net minninga, drauma og duld tengsl úr fortíðinni, þar sem hvarf sextán ára stúlku og óuppgerð leyndarmál mynda áþreifanlega spennu til hinsta orðs.
Aníta Briem og Berglind Alda Ástþórsdóttir túlka systurnar Marsí og Kristínu á einstakan hátt sem glæðir söguna lífi og eykur tengsl lesanda við persónurnar. Báðar hafa þær góða tilfinningu fyrir tungumálinu og áheyrilegar raddir.“
Þá hlaut Lestrarklefinn sérstök heiðursverðlaun fyrir framlag til umræðu um bókmenntir og lestrarmenningu á Íslandi.
„Lestrarklefinn er grasrótarvettvangur sem hefur frá árinu 2018 unnið óeigingjarnt og kraftmikið starf við að halda bókmenntaumræðu á Íslandi lifandi. Á vefnum er fjallað af ástríðu og fagmennsku um bækur í öllum formum – hvort sem um er að ræða prentaðar bækur, hljóðbækur eða rafbækur – auk leikhúss og menningar í víðara samhengi,“ segir í umsögn dómnefndar þar sem jafnframt kemur fram að með vandaðri umfjöllun, fjölbreyttu efni og persónulegri nálgun hafi Lestrarklefinn veitt aðgengilega bókmenntaumfjöllun og tengt saman lesendur, höfunda og verk á lifandi hátt.
Verðlaununum veittu viðtöku stofnendur og ritstjórar Lestrarklefans, þær Díana Sjöfn Jóhannsdóttir, Katrín Lilja Jónsdóttir og Rebekka Sif Stefánsdóttir.