Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri, Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ), og Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB undirrituðu viljayfirlýsingu í morgun þess efnis að skoða nýjar leiðir til þess að auka framboð og hraða uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík og þannig stuðla að auknu jafnvægi á fasteignamarkaði.
Með þessari viljayfirlýsingu vilja verkalýðshreyfingin og Reykjavíkurborg hefja nýja sókn í húsnæðismálum.
Auk borgarstjóra og fulltrúa verkalýðshreyfinganna tveggja undirrituðu fulltrúar meirihlutans einnig undir yfirlýsinguna, þær Dóra Björt Guðjónsdóttir, Pírötum, Helga Þórðardóttir, Flokki fólksins, Líf Magneudóttir, Vinstri grænum og Sanna Magdalena Mörtudóttir, Sósíalistaflokki, segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Þá segir að borgin, ASÍ og BSRB hafi með samvinnu sinni undanfarin ár brotið blað í húsnæðismálum eftir stofnun ASÍ og BSRB á Bjargi og síðar Blæ og úthlutun Reykjavíkurborgar á stofnframlögum í formi fjölmargra lóða til uppbyggingar almennra íbúða í eigu þessara félaga.
Þannig hafi á annað þúsund efnaminni fjölskyldum á vinnumarkaði verið tryggt öruggt þak yfir höfuðið. Tekið er fram að árangur verkefnisins hafi verið mikill og þá sé eftirspurn eftir áframhaldandi uppbyggingu ótvíræð eins og biðlistar beri með sér.
Þá segir að komið verði á fót starfshópi, sem verði skipaður tveimur fulltrúum frá hverjum þessara aðila, sem sé ætlað að setja fram hugmyndir að verkefnum sem geta skapað sóknarfæri í núverandi ástandi.
Helstu verkefni starfshópsins eru:
Þá kemur fram að starfshópurinn hafi störf strax og stefnt sé að því að hann skili niðurstöðum í lok maí. Aðilar séu sammála um að þegar niðurstöður starfshópsins liggi fyrir verði metið hvort og þá á hvaða grunni verði unnið áfram með niðurstöðurnar.