Gul viðvörun víða um land á morgun

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir.
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir. Skjáskot/Veðurstofan

Gul veðurviðvörun er í gildi til klukkan 19 í dag á Suðausturlandi. Þá tekur gul viðvörun gildi í Faxaflóa, Breiðafirði, á Vestfjörðum og á Suðurlandi á morgun.

Á morgun verður gul viðvörun í gildi á Suðurlandi frá klukkan 14 til 17. Í Faxaflóa veður gul viðvörun í gildi frá klukkan 15 til 17. 

Klukkan 16 tekur gul viðvörun gildi í Breiðafirði og er hún í gildi til klukkan 19. 

Þá verður gul viðvörun í gildi frá klukkan 17 til 23 á Vestfjörðum. 

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka