Neyðarsöfnun hafin fyrir þolendur jarðskjálftana

Viðbragðsaðilar eru í kappi við tímann að bjarga fólki úr …
Viðbragðsaðilar eru í kappi við tímann að bjarga fólki úr rústum bygginga. AFP/Sai Aung Main

Rauði krossinn á Íslandi hefur hafið neyðarsöfnun fyrir þolendur jarðskjálftana í Mjanmar. Tala látinna er komin yfir 1.600 og gert er ráð fyrir að hún muni hækka.

Vinna viðbragðsaðilar, meðal annars sjálfboðaliðar Rauða krossins, í kappi við tímann að því að bjarga fólki úr rústum bygginga, að kemur fram í tilkynningu frá Rauða krossinum.

Rauði krossinn í Mjanmar er á hamfarasvæðunum og sveitir frá nágrannalöndum eru einnig komnar til landsins. Þá hafa fleiri sveitir verið kallaðar út.

Utanaðkomandi aðstoð lífsnauðsynleg

Stærsti skjálftinn sem reið yfir í gærmorgun, var 7,7 stig og fylgdi fjöldi eftirskjálfta í kjölfarið. Gríðarleg eyðilegging blasir við og innviðir eru í lamasessi. Vegir hafa farið í sundur, fjarskipti liggja niðri á mörgum svæðum og rafmagnsleysi er útbreitt.

„Við Íslendingar þekkjum af eigin raun þá ofsafengnu krafta sem leysast úr læðingi í stórum jarðskjálftum,“ er haft eftir Gísla Rafni Ólafssyni, framkvæmdastjóra Rauða krossins á Íslandi, í tilkynningunni.

AFP/Sai Aung Main

„Skjálftinn sem varð í Mjanmar í gærmorgun var af slíkri stærðargráðu að hann lagði stórt svæði í rúst, í landi þar sem innviðir voru veikir fyrir. Mannfall er mikið og utanaðkomandi aðstoð lífsnauðsynleg.“

Neyðarsöfnun Rauða krossins sem nú er hafin miðar að því að þolendur hamfaranna fái þá nauðsynlegu bráðaaðstoð sem þeir sárlega þarfnast.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka