Björgunarsveitarmenn fengu tvo fyrir einn

Það var heldur hráslagalegt á Reykjanesskaga í dag.
Það var heldur hráslagalegt á Reykjanesskaga í dag. Skjáskot/vefmyndavél mbl.is

Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík var kölluð út í dag vegna ferðalangs sem lenti í vandræðum á Langahrygg austan Grindavíkur. Aðgerðin gekk fljótt og vel fyrir sig og maðurinn fannst.

Á för sinni um svæðið rákust björgunarsveitarmenn fyrir tilviljun á annan mann en engin tengsl voru á milli mannanna tveggja.

Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg var báðum var komið í skjól en leiðindaveður var á svæðinu í dag. 

Losuðu bíla og heiðinni lokað

Björgunarsveitin Dýri á Þingeyri var þá kölluð út vegna bíls á Dynjandisheiði. Björgunarsveitarmenn fóru yfir heiðina og losuðu bílinn og annan til og heiðinni var lokað í kjölfarið.

Björgunarsveitarmenn vörðu drjúgum parti dagsins á heiðinni en meðal annars fór bíll upp á lokaða heiðina í eftirmiðdaginn.

Byggingarefni fauk í Hafnarfirði

Á höfuðborgarsvæðinu var veðrið ekki mikið skárra en Björgunarsveit Hafnarfjarðar var til að mynda kölluð út á byggingarsvæði við vellina í Hafnarfirði upp úr klukkan fimm í dag þar sem byggingarefnisplötur voru að fjúka.

Þrumur og eldingar

Þrumuveður gekk yfir landið og tugum eldinga laust niður. Gular viðvaranir eru í gildi til 23 á Breiðafirði, til miðnættis á Vestfjörðum og til klukkan tvö í nótt á miðhálendinu.

Gular viðvaranir taka þá gildi í nótt og í fyrramálið. Frá klukkan tvö í nótt á miðhálendinu, þrjú á Norðurlandi eystra, fjögur á ströndum og Norðurlandi vestra og 9 á Vestfjörðum. síðustu viðvaranir falla úr gildi um miðjan dag á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka