Guðrún Hafsteins í ljósum logum á Akureyri

Í Spursmálum síðastliðinn föstudag var farið yfir það helsta sem dreif á daga stjórnmálafólks á samfélagsmiðlunum í vikunni sem nú er að líða og má með sanni segja að á ýmsu hafi gengið á miðlunum. Yfirferðina má nálgast í meðfylgjandi myndbandsspilara en verður einnig gert skil hér að neðan.

Smjörklípukarlar fá ekki sviðið

Gömlukalla rausið í smjörklípumönnum eins Össuri Skarphéðinssyni og öðrum sviðakjömmum fær ekki sviðið hér. Enda hefur það aldrei haft neitt upp á sig að veita litlum börnum í frekjukasti sérstaka athygli, þetta er svona svipað.

Alþingiskórinn endurvakinn

Í byrjun vikunnar stofnaði K-Frost til samsöngs á miðjum fundi til heiðurs aðstoðarmanns síns, Kristínar Ólafsdóttur, sem átti afmæli. Auðvitað þorðu fundargestir ekki öðru en að hlýða „Queen K-Frost“ og þöndu raddböndin eins og krakkar í kirkjukór. Þarf ekki að endurvekja Alþingiskórinn?

Bindisvalið sett í þjóðaratkvæðagreiðslu

Kristján Snæbjarnarson var í massa veseni með að velja sér bindi fyrir fund atvinnuveganefndar og ákvað því að leita á náðir almennings með litavalið. Litla lýðræðisveislan!

Svefnleysi Jóns Gnarr 

Okkar allra besti Jón Gnarr hefur átt erfitt með svefn undanfarið. Elsku karlinn, með hausinn á þeytivindu alltaf hreint. En í einhverju svefnleysinu varð hann var við skuggalega mannveru, sem gæti hafa verið Alexandra Briem, um miðja nótt krota ódæðisorð á Teslu-bifreið nágranna hans. 

View this post on Instagram

A post shared by Jón Gnarr (@jongnarr)

Sellerí og vatn með hinum íslenska Dumbledore

Jón var duglegur á samfélagsmiðlunum í vikunni og studdi vin sinn Lýðheilsu-Magga í kjöri til rektors Háskóla Íslands. Þó að hann myndi frekar borða sellerí og drekka vatn heldur en steik og bjór. Hver nennir að eiga þannig vini? Stuðningur Jóns dugði þó ekki til því Maggi Kalli tapaði fyrir Silju Báru. Enn ekki hvað!

View this post on Instagram

A post shared by Jón Gnarr (@jongnarr)

K-Frost á milli stanganna

Kristrún og ríkisstjórnin voru svo í opnu samtali við allt og alla í vikunni nema Spursmál. Það borgar sig alltaf að bakka í vörn þegar andstæðingur ógnar, það er gömul saga og ný í kappleikjum. K-Frost gengur í allar stöður og tekur hverja markvörsluna á fætur annarri, Björgvin Páll Gústafsson hvað?

Ert þú í atvinnuleit?

Alþingi auglýsti eftir nýjum skrifstofustjóra í vikunni. Þangað þarf líklega að ráða einhvern vel þrekinn, kattliðugan með góð sambönd. Einhver sem passar við þessa lýsingu og býður sig fram?

View this post on Instagram

A post shared by Alþingi (@althingi)

Ísdrottningin „on fire“

Guðrún Hafsteins var á fartinni alla vikuna þar sem hún fundaði vítt og breitt og var „on fire“ á trúnaðarmannafundi á Akureyri. Sko, í bókstaflegri merkingu ef marka má þetta „story“ á Instagram hjá grindjánanum Villa Árna. Enda mælist Sjálfstæðisflokkurinn stærri en Samfylkingin þessa stundina.

Samfylking stelur málum af Framsókn 

Ása Berglind er aldeilis farin að færa sig upp á skaftið og skaut föstum skotum á Ingibjörgu Isaksen. Segir hún Ingibjörgu halda því fram að Samfylkingin sé að stela málum af Framsóknarflokknum. Það bara getur ekki verið. Á ekki við nein rök að styðjast.

Alveg slök framsóknarlömb

Ingibjörg Isaksen kippti sér ekkert sérstaklega upp við pillurnar frá Ásu og hélt sínu striki ásamt flokksbróður sínum Þórarni Inga Péturssyni. Þessi framsóknarlömb eru með breiðara bak en maður heldur.

Styttist í gullbrúðkaup!

Inga Sæland deildi fallegri minningu frá brúðkaupsdegi sínum fyrir 47 árum á Facebook í vikunni. Nú styttist heldur betur í gullbrúðkaup hjá Ingu ömmu og Óla afa og ekki ólíklegt að þau muni endurnýja heitin eftir þrjú ár þegar þau hafa verið ástfangin í hálfa öld. Takið daginn frá: Musteri Flokks Fólksins, Grafarvogskirkja, Fjörgyn, 25. mars 2028.

Fokk ofbeldi - Áfram Ágústa!

Það er ekki hægt að ljúka þessari yfirferð án þess að minnast á eitt það áhrifaríkasta sem gerst hefur á Alþingi Íslendinga fyrr og síðar. Ágústa Ágústsdóttir, varaþingmaður Miðflokksins, opnaði sig í pontu um heimilisofbeldi sem hún varð fyrir og biðlaði til löggjafarvaldsins um að hysja upp um sig brækurnar í þeim málum. Maður bjóst ekki við þessu úr átt Miðflokksins en það er ástæða til að henda spaðafimmu á Ágústu. Henni tókst algerlega að mýkja Simma Dabba og fleiri sykurpabba sem hrósuðu happi yfir ræðu hennar. 

Nýjasta þátt Spursmála má sjá og heyra í spilaranum hér að neðan:

Guðrún Hafsteinsdóttir, nýkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins.
Guðrún Hafsteinsdóttir, nýkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Anton Brink
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka