Kemur vorið á föstudaginn?

Ef bestu spár rætast gæti þetta litið svona út um …
Ef bestu spár rætast gæti þetta litið svona út um miðjan dag á föstudag. Skjáskot af vef Veðurstofu Íslands

Eins og veðrið hefur verið í dag hefur ekki margt bent til þess að vorið sé á næsta leiti, en sé spákortið á vef Veðurstofu Íslands skoðað nokkra daga fram í tímann er óhætt að segja að það sjái til sólar í náinni framtíð, í bókstaflegri merkingu.

Rætist spáin eins og hún stendur í dag ætti að vera 10 stiga hiti og glampandi sól á höfuðborgarsvæðinu um miðjan dag á föstudag, og í raun einmuna blíða og sól um allt land.

Marcel de Vries, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir í samtali við mbl.is ágætar líkur á því að spáin rætist þó hann þori varla að tala um það, af ótta við að með því kalli hann yfir okkur verra veður.

Fer að hlýna strax á fimmtudag

Hann tekur engu að síður fram að ekki þurfi að verða miklar breytingar til að spáin gangi ekki eftir og að þá geti hafgolan líka fært vætusamt veður að landi.

„Eins og spáin er núna lítur þetta ótrúlega vel út á föstudaginn, og það hefur verið í kortunum í nokkra daga, bjart og 2 til 8 stiga hiti, og rólegt veður,“ segir Marcel. Spáin hefur því verið stöðug, sem eykur líkurnar á að hún rætist. 

Gangi spáin eftir má gera ráð fyrir því að það fari að hlýna og birta til strax á fimmtudag.

„Við verðum enn með rigningu og él eða snjókomu og slyddu á miðvikudag, en þegar líður á daginn og styttir upp og þá kemur þessi hæð,“ segir Marcel. 

Á fimmtudag sé útlit fyrir bjart veður á köflum en smá vætu á vestan- og norðanverðu landinu.

„Það er alltaf gott að vona“

En þó það sé sól og hlýindi í kortunum, vill Marcel vera með báða fætur jörðinni og minnir á að snemma á vorin, þegar hlýtt er í lofti, eigin þoka það til að læðast yfir.

„Það er oft pirrandi snemma á vorin að dagurinn byrjar svo vel með sól og von, en svo kemur hafgolan inn með rakt loft og lág ský, og um tvö- eða þrjúleytið þá erum við komin með vætusamt veður. Sem eru alltaf vonbrigði,“ segir Marcel. 

„En spáin er jákvæð og bjartsýn og það er alltaf gott að vona, bætir hann við.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka