Léku golf og ræddu viðskipti með ísbrjóta

Donald Trump og Alexander Stubbs á Trump International í Palm …
Donald Trump og Alexander Stubbs á Trump International í Palm Beach í Flórída í gær. Skjáskot/Truth Social @realDonaldTrump

Alexander Stubb Finnlandsforseti heimsótti Donald Trump, starfsbróður sinn vestan Atlantshafsins, í gær.

Þeir Trump og Stubbs snæddu saman bæði dögurð og hádegisverð og tóku þátt í golfmóti á Trump International golfvellinum í Palm Beach í Flórída og áttu samtal um að styrkja tvíhliða samstarf ríkjanna.

Donald Trump sagði frá heimsókninni á samfélagsmiðli sínum, Truth Social. Þar sagði hann að þeir starfsbræðurnir hlökkuðu til að styrkja samstarf ríkjanna sem fæli meðal annars í sér viðskipti með fjölmarga ísbrjóta en Finnar eru leiðandi framleiðendur ísbrjóta í heiminum.

Ræddu Úkraínu stuttu eftir fund með Selenskí

Trump og Stubbs ræddu einnig utanríkismál og þar á meðal málefni Úkraínu en Volodimír Selenskí fundaði með Stubb í Helsinki í síðustu viku.

Öldungadeildarþingmaðurinn Lindsey Graham hrósaði golfhæfileikum Stubbs í færslu á X en Graham tók einnig þátt í mótinu.

Stubbs lék golf á námsárum sínum við Furman háskólann í Suður-Karólínu.

Fyrir heimsókn sína hafði Stubb látið hafa eftir sér að hann myndi vilja leika golf með Trump og að ísbrjótar gætu hjálpað Finnlandi að viðhalda góðum tengslum við Bandaríkin og Trump forseta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka