„Sáum blossann og tókum enga sénsa“

Ljósmynd/Kópavogsbær

„Við sáum bara blossann og heyrðum lætin og tókum enga sénsa.“

Þetta segir Ragnheiður Ólafsdóttir, vaktstjóri í Salalaug, en lauginni var lokað um skeið þegar starfsfólk varð vart við bæði þrumur og eldingar nærri lauginni.

„Við hugsum fyrst og fremst um okkar viðskiptavini,“ segir Ragnheiður í samtali við mbl.is.

Sundlaugargestum var öllum safnað saman í innilauginni og fólki sem dreif að á meðan lokuninni stóð var vísað frá.

Hvernig tók fólk þessu?

„Það tóku þessu allir mjög vel. Auðvitað tekur fólk því vel þegar verið er að hugsa um þeirra öryggi,“ segir Ragnheiður.

Segir hún flesta þá sem þurftu frá að hverfa hafa setið og beðið þess að laugin opnaði á ný en að einhverjir hafi farið en snúið svo við þegar þeir heyrðu að búið væri að opna.

Salalaug hefur verið opnuð á ný og verður að óbreyttu opin til klukkan 18 í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka