„Við vorum búin að vera þátttakendur í ríkisstjórn sem var sögulega óvinsæl á lokametrunum. Í raun og veru þá hefðum við átt að vera búin að slíta því samstarfi löngu fyrr,“ sagði Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, í Sprengisandi í morgun.
Vinstri grænir voru í ríkisstjórn með Framsókn og Sjálfstæðisflokki frá 2017 til 2024. Í síðustu alþingiskosningum duttu Vinstri grænir af þingi. Flokkurinn fékk 4.974 atkvæði, eða 2,3%.
Svandís segir að vorið 2023 hafi ríkisstjórnarsamstarfið ekki verið á góðum stað. „Þá var stemningin farin. Í framhaldi af því þá var þetta farið að snúast meira um hagmuni flokkanna.“
Í nóvember 2023 fóru þingmenn og ráðherrar stjórnarflokkanna með rútu á Þingvelli þar sem þingflokkarnir þrír fóru yfir stöðuna og ræddu saman.
Svandís segir þá ferð ekki hafa gengið nógu vel.
„Um haustið var gerð söguleg tilraun þar sem að við fórum í rútu með rútur til þess að hrista hópinn saman og það gekk ekkert.“
Myndatökumaður mbl.is tók meðfylgjandi myndskeið áður en stjórnmálamennirnir lögð af stað á Þingvelli.