„Þetta var mikið eldingaveður og er ennþá í gangi. Það er komið svolítið austar núna, er yfir Eyjafjöllum, Mýrdal og Fljótshlíðinni,“ segir Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, um þrumu- og eldingaveðrið sem gengið hefur yfir í dag.
Nokkrum eldingum laust niður á Kollafirði, rétt við Viðey, síðdegis og sáust þær vel í höfuðborginni. Háværar þrumur fylgdu í kjölfarið.
Svo miklir voru blossarnir af eldingunum að sundlaugargestum í Salalaug í Kópvogi var safnað saman í innilaugina af ótta við að eldingum myndi ljósta niður í laugina.
Þorsteinn segir eldingaveðrið hafa verið sunnan við borgina fyrr í dag, við Kleifarvatn og Vatnsleysu en þrumugnýrinn hafi heyrst vel til borgarinnar.
„Þetta er að þokast austur á bóginn og mun halda eitthvað áfram fram á kvöldið. Eftir klukkan átta verður þetta verður þetta eflaust orðið lítið.“