„Allt kjörtímabilið er undir í þessari vinnu“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Inga Sæland, …
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, fóru yfir fyrstu 100 daga ríkisstjórnarinnar í dag ásamt því að ræða nýja fjármálaáætlun sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra kynnti í morgun. mbl.is/Eyþór

Eitt af forgangsverkefnum nýrrar ríkisstjórnar er að hagræða, einfalda stjórnsýslu og sameina stofnanir sem er liður í því að ná stjórn á fjármálum ríkisins og skapa skilyrði fyrir lækkun vaxta. 

Fram kemur í nýrri fjármálaáætlun 2026-2030, sem fjármálaráðherra kynnti í morgun, að umfangsmikil vinna muni fara fram á árinu 2025 við frekari úrvinnslu og útfærslu þeirra fjölmörgu tillagna til hagræðingar og einföldunar stjórnsýslu sem aflað hafi verið á fyrstu mánuðum kjörtímabilsins. Alls er stefnt að 107 milljarða hagræðingu yfir tímabilið.

Nákvæmar áætlanir liggi fyrir í lok árs

„Allt kjörtímabilið er undir í þessari vinnu, fyrstu áætlanir birtast í þessari fjármálaáætlun en gert er ráð fyrir að í desember 2025 liggi fyrir nákvæmar áætlanir hjá öllum ráðuneytum fyrir kjörtímabilið,“ segir í áætluninni. 

Vísað er til þess þegar ríkisstjórnin efndi í upphafi árs til samráðs við þjóðina undir yfirskriftinni Verum hagsýn í rekstri ríkisins. Auk þess sem einnig hafi verið óskað eftir tillögum til hagræðingar, einföldunar og umbóta frá ráðuneytum og öllum stofnunum ríkisins, en alls bárust tæplega 4.000 tillögur, langflestar frá einstaklingum.

Starfshópur um hagræðingu í ríkisrekstri vann úr tillögunum og skilaði tillögum sínum til ríkisstjórnar í byrjun mars.

Almenningur vilji skilvirkari og gagnsærri opinbera þjónustu

„Tillögurnar sem bárust endurspegla áherslu almennings á skilvirkari og gagnsærri opinbera þjónustu og varpa ljósi á ákveðna þætti sem almenningur telur brýnt að endurskoða. Helstu hugðarefnin snúa að sameiningu og fækkun opinberra stofnana, skýrari ábyrgðarskiptingu og samræmingu hlutverka þeirra. Sérstaklega var vísað til fámennra eininga og stoðþjónustu sem gæti notið samreksturs og samnýtingar, t.d. í upplýsingatækni, mannauðsmálum og inn­kaupum,“ segir í áætluninni.

Þá hafi komið fram fjöldi tillagna um einföldun sjóðaumhverfis, m.a. með sameiningu sjóða, og umbætur í rekstri hins opinbera með minni skjalaumsýslu og aukinni stafvæðingu. Eins hafi sérstaklega verið bent á tækifæri til að bæta innkaupastarfsemi ríkisins með aukinni gagnadrifinni greiningu, samræmingu útboða og skýrari samningum við birgja.

Mikilvægt að draga úr umfangi og tvíverknaði

„Af tillögunum má ráða að almenningur telji mikilvægt að draga úr umfangi og tvíverknaði innan stjórnsýslunnar, m.a. með því að sameina stofnanir sem sinna sambærilegum verkefnum og samræma stjórn­sýsluhlutverk.

Umbætur og hagræðing í rekstri ríkisins er mikilvægur liður í breyttri forgangsröðun fjármuna sem þessi fyrsta fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar ber vitni um. Nú þegar er hafin vinna við innleiðingu einstakra hagræðingartillagna og lögð verður áhersla á samráð og gagnsæi í þeirri vinnu. Þá hefur hluti tillagna frá fyrrnefndum starfshópi og ráðuneytum verið tekinn inn í áætlunina og þannig skapað svigrúm fyrir forgangs­mál ríkisstjórnarinnar. Ráðstafanirnar felast m.a. í frestun eða niðurfellingu verkefna, endurskoðun á forsendum fjárveitinga, endurskoðun fyrirkomulags eða hagræðingu í rekstri,“ segir í áætluninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert