Gæti útskýrt óþefinn og óbragðið

Niðurstöður úr sýnatökum benda til að lyktar- og bragðgallar vatnsins …
Niðurstöður úr sýnatökum benda til að lyktar- og bragðgallar vatnsins orsakist af mengun úr jarðvegi. mbl.is/Sigurður Bogi

Borun nýrrar neysluvatnsborholu við Hveragerði gæti skýrt þann óþef og óbragð sem Hvergerðingar hafa fundið af vatninu undanfarna daga. 

Í tilkynningu á vef bæjarins segir að borunin hafi hugsanlega komið hreyfingu á jarðveg sem orsakaði skert gæði neysluvatnsins. Niðurstöður úr sýnatökum sem bárust fyrir helgi benda til að lyktar- og bragðgallar vatnsins séu vegna mengunar úr jarðvegi.

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands segir að vatnið sé ekki talið heilsuspillandi þrátt fyrir að gæði þess séu ekki viðunandi.

Vel vaktað

Útskolun á kerfinu gæti tekið tíma og er íbúum bent á að neyta vatns í flöskum á meðan ástandið varir ef þeim líkar ekki vatnið í krananum.

„Ástand neysluvatnsins í Hveragerði er vel vaktað og regluleg sýni eru og verða áfram tekin og rannsökuð. Áfram er unnið að því að greina hvað orsakar bragð- og lyktargalla í neysluvatninu með margs konar prófunum, athugunum og útskolun úr vatnsveitukerfi bæjarins. Sú vinna er í forgangi hjá bænum,“ segir í tilkynningu bæjarins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert