Áköf jarðskjálftahrina og talsvert magn kviku á ferðinni

Mjög áköf jarðskjálftahrina í gangi á Sundhnúkagígaröðinni.
Mjög áköf jarðskjálftahrina í gangi á Sundhnúkagígaröðinni. mbl.is/Hákon

„Það er mjög áköf jarðskjálftahrina í gangi á Sundhnúkagígaröðinni og skjálftarnir hafa verið að dreifast bæði suður og norður milli Sundhnúks og Grindavíkur,“ segir Jóhanna Malen Skúladóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.

Á sjöunda tímanum í morgun hófst kvikuhlaup við Sundhnúkagígaröðina og líkur á eldgosi eru taldar miklar.

„Við erum að horfa á öðruvísi þróun á þessum atburði miðað við síðustu gos. Jarðskjálftahrinan er mjög áköf og rétt áðan mældist skjálfti 4 að stærð sem fannst mjög vel á svæðinu,“ segir Jóhanna Malen.

Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að merki frá aflögunarmælum séu sterkari en sést hafa í síðustu atburðum á Sundhnúkagígaröðinni. Það sýnir að talsvert magn kviku sé á ferðinni.

„Við verðum bara að bíða og sjá hvort kvikan nái upp en hún er allavega að pota sér eitthvað,“ segir hún en merkin sem sjást sýna að kvikan er að hreyfa sig bæði til norðausturs en einnig í suður í átt að Grindavík. 

Jóhanna segir að algengustu upptök gossins hafi verið á svæðinu milli Sýlingafells og Stóra Skógfells en miðað við skjálftavirknina núna þá sé ekki hægt að útiloka að kvikan komi upp sunnar nær Grindavík eða norðar.

„Eins og við höfum talað um höfum við verið að búast við mjög stuttum viðbragðstíma þegar gosin hafa komið upp milli Sýlingarfells og Stóra Skógfells. Núna virðist kvikan reyna að leita í aðrar áttir og þar af leiðandi getur orðið erfiðara fyrir hana að komast upp á yfirborðið. Þetta er að taka lengri tíma og svo kemur bara í ljós með tíð og tíma hvort hún komist upp. Af fyrri reynslu búumst við því að þessari atburðarás ljúki með eldgosi,“ segir hún.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert