„Það er ekki hægt að segja að þessi atburðarás sem hófst í morgun og endaði með gosi hafi komið á óvart,“ segir Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur við mbl.is en eldgos braust út rétt fyrir norðan varnargarðinn við Grindavík á tíunda tímanum í morgun.
„Í augnablikinu sýnist mér þetta vera mjög afllítið gos en gossprungan er að lengjast og þá til norðurs. Mér sýnist hraun vera að flæða í áttina að Þorbirni til vesturs en þetta er frekar veikburða kvikustrókavirkni,“ segir Þorvaldur.
Þorvaldur segir að gosið sé í líkingu við gosið sem varð í janúar í fyrra sem var frekar máttlítið og stutt gos. Þetta er áttunda eldgosið á Sundhnúkagígaröðinni frá því goshrinan hófst þar í desember 2023.
„Það má kannski segja að það komi óvart hversu afllítið gosið er. Ég átti von á öflugra gosi í byrjun en svona er móðir náttúra. Hún stýrir þessu og er hennar sjónarspil. En þetta getur breyst,“ segir hann.
Þorvaldur segir að góðu fréttirnar séu þær að gossprungan sé að lengjast til norðurs en áréttar að staðan geti breyst á næstu mínútum.
Hann segir að ekki skorti kvikumagn en uppsöfnuð kvika hefur aldrei verið meiri en nú og þrýstingurinn í kvikuhólfinu sennilega aldrei verið meiri.
Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands segir að sprungan sé nú um 500 metrar og hafi nú náð í gegnum varnargarðinn sem er norður af Grindavík.
Sprungan haldi áfram að lengjast og ekki hægt að útiloka að hún haldi áfram að opnast til suðurs.