Ekki sannfærður um túlkun Veðurstofunnar

Þorvaldur Þórðarson við eldgosið nú síðdegis.
Þorvaldur Þórðarson við eldgosið nú síðdegis. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur er ekki sannfærður um að kvika sé komin mjög norðarlega eins og Veðurstofan túlkar það. Hann segir að eldgosinu sé svo gott sem lokið. 

„Að kvikugangurinn sé kominn svona langt norður er túlkun, ekki staðreynd,“ segir Þorvaldur í samtali við mbl.is.

Bene­dikt Gunn­ar Ófeigs­son, fag­stjóri af­lög­un­ar­mæl­inga á Veður­stofu Íslands, sagði fyrr í dag að kvikugangurinn sem myndaðist frá Sundhnúkagígaröðinni hefði rutt sér leið umtalsvert norður, ekki langt frá Reykjanesbrautinni.

Skjálftavirkni hefur færst verulega norður en Þorvaldur telur að það sé ekki vegna kviku heldur frekar vegna flekahreyfinga. 

Eldgosið braust út norður af Grindavík í morgun.
Eldgosið braust út norður af Grindavík í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hreyfing eða veikleikar í skorpunni

Þorvaldur segir að Veðurstofan notist við ákveðið líkan sem einhliða miði við eina mögulega túlkun, að skjálftavirkni myndist vegna þess að kvikugangur sé að flæða norður eftir og suður eftir.

„Við erum ekki öll sem horfum á þetta þannig,“ segir Þorvaldur og útskýrir að hann hallist frekar að þeirri útskýringu að flekar séu á hreyfingu.

„Ég held að þetta hafi fyrst og fremst verið hreyfing eða veikleikar í skorpunni sem við köllum Sundhnúkareinina. Ég held að það hafi verið vegna þess að kvikan sem safnaðist fyrir undir Svartsengi – við höfum haft meiri kviku en hefur nokkurn tíman áður hefur safnast þar fyrir, og við það eykst þrýstingurinn frá hólfinu og umhverfið í kringum sig,“ segir hann.

„Sá þrýstingur hefur sennilega farið yfir þolmörk Sundhnúkareinarinnar – hún var náttúrulega veikasti hlekkurinn í allri keðjunni – og hún hefur hrokkið til. Þegar hún hrökk til þá myndast þessi skjálftavirkni því skjálftar myndast þegar skorpa brotnar.“

„Atburðurinn er í raun og veru búinn“

Hann nefnir að hann útiloki ekki útskýringuna um kvikugang en hann hallist frekar að þeirri útskýringu að skjálftavirknin sé vegna hreyfingar á Sundhnúkasprungunni.

„Jú, það er alveg hugsanlegt að kvika komi upp þarna norðar og þá norðar heldur en áður, en mér finnst það ólíklegt. Atburðurinn er í raun og veru búinn hérna núna,“ segir Þorvaldur.

Hann segir mikilvægt að allir möguleikar séu skoðaðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert