Viðbragðsaðilar í Grindavík segjast finna fyrir jarðskjálftum í bænum og þar sjást einnig merki um aflögun og því mögulegt að sprunguhreyfingar geti átt sér stað innan bæjarins.
Þetta segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands en þar segir að áköf jarðskjálftahrina hafi hafist kl. 6.30 í morgun á Sundhnúkagígaröðinni. Skjálftahrinan er staðsett á milli Sýlingarfells og Stóra-Skógfells. Skjálftavirknin er á svipuðum slóðum og sést hefur í aðdraganda síðustu eldgosa á Sundhnúkagígaröðinni.
„Á þessu stigi er ekki hægt að fullyrða um hvar kvikan muni koma upp, en færslan á aflögunarmerkjum til suðurs sáust til að mynda ekki í eldgosinu sem hófst í nóvember 2024,“ segir enn fremur í tilkynningunni.