Óvenjuleg þróun: Fylgjast með og bæta við mælum

Benedikt Halldórsson, fagstjóri jarðskjálftavár á Veðurstofunni og rannsóknarprófessor við Háskóla …
Benedikt Halldórsson, fagstjóri jarðskjálftavár á Veðurstofunni og rannsóknarprófessor við Háskóla Íslands, greinir hegðun gossins í dag fyrir mbl.is. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þetta er búið að vera fjörugt í dag, skjálftavirknin er enn í gangi þrátt fyrir að virðist hafa dregið úr gosinu,“ segir Benedikt Halldórsson, fagstjóri náttúruvár hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is um áttunda gosið á Reykjanesskaga sem hófst í morgun.

Kveður hann gosið þar með hafa verið í ólíkum takti við fyrri gos á svæðinu og fylgist starfsfólk skjálftavaktar Veðurstofunnar með framgangi mála þar sem skjálftavirknin virðist fyrst og fremst nyrst í kvikuganginum.

Gangurinn leitar til norðausturs

Aðspurður segir Benedikt gosið í dag í grundvallaratriðum líkt fyrri gosum, það komi upp í gegnum skorpuna á Sundhnúkssvæðinu þar sem lárétt framrás kvikugangsins til norðausturs og suðvesturs hefjist.

„Það byrjar að fara til suðvesturs í átt að Grindavík og nær undir norðurhluta Grindavíkur, það virðist vera takturinn fyrsta klukkutímann. Síðan hættir framrás kvikugangsins þar til suðurs og hann leitar frekar til norðausturs,“ heldur Benedikt áfram.

Þetta sé þekkt frá fyrri gosum, en þrátt fyrir þrýstingslækkun í kerfinu í dag hafi þrýstingurinn nægt til þess að gangurinn hafi haldið áfram að brjóta sér leið norðar.

„Það virðist hafa hægt á því, sem eru góð tíðindi, en við erum enn þá að fylgjast með þessu, það er verið að bæta við mælum til þess að fá betri mynd, en þetta er atburðarásin í skjálftunum eins og hún hefur verið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert