Frumvarp Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, um breytingar á lögum um fjöleignarhús í þá veru að rýmka mjög heimildir til gæludýrahalds í fjöleignarhúsum, gengur of langt að mati Húseigendafélagsins.
Þetta segir Hildur Ýr Viðarsdóttir formaður félagsins í samtali við Morgunblaðið.
Í frumvarpinu sem Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hefur áður lagt fyrir Alþingi, þá sem óbreyttur þingmaður, er mælt fyrir um að hunda- og kattahald í fjöleignarhúsum sé ekki lengur háð samþykki annarra eigenda í húsinu. Sambærilegt frumvarp hefur verið lagt fram fjórum sinnum áður, án þess að fá brautargengi.
Í núgildandi lögum sem eru frá árinu 2011 er kveðið á um að slíkt gæludýrahald sé heimilt, enda njóti það samþykkis 2/3 hluta eigenda sem hafa sameiginlegan inngang eða stigagang í fjöleignarhúsi.
Þó er ekki þörf á slíku samþykki sé íbúð gæludýraeiganda með sérinngang í húsið, en ákveðnir fyrirvarar eru þó gerðir við það.
Hildur Ýr segir breiðan hóp fólks eiga aðild að Húseigendafélaginu og því sé ekki hægt að mæla fyrir munn allra í þessu máli, enda séu bæði hunda- og kattavinir í félaginu sem og fólk sem hafi ofnæmi fyrir slíkum dýrum, hræðist þau eða vilji forðast af öðrum ástæðum. Augljósir kostir séu þó við gæludýrahald, þau séu gleðigjafar og sporni gegn einmanaleika meðal fólks, en á móti komi að einnig þurfi að horfa til sjónarmiða þeirra sem hræðist hunda og ketti sem og þeirra sem haldnir séu ofnæmi fyrir dýrunum.
Lesa má nánar um málið í Morgunblaðinu í dag og i nýja Mogga-appinu