Frá janúar 2024 hafa 3.020 rafbílastyrkir verið veittir. Styrkirnir eru á bilinu 400 til 900 þúsund krónur en í heildina hefur verið veitt 2,5 milljörðum króna í styrkina.
Þetta kemur fram á vef fjármálaráðuneytisins, en þar er greint frá því þegar ný tegund styrkveitingar til rafbílakaupa hafi tekið gildi áramótin 2023-2024.
Bent er á að styrkjunum sé ætlað að styðja við orkuskipti og stuðla að umhverfisvænni samgöngum.
Með stafrænum lausnum sé umsýsla rúmlega þrjú þúsund styrkja að fullu sjálfvirk, allt frá umsókn til afgreiðslu styrkja.
Nánari umfjöllun er að finna hér.