Þrír eftir í varðhaldi: Yngsti áfrýjar til Landsréttar

Þrír sitja eftir í gæsluvarðhaldi.
Þrír sitja eftir í gæsluvarðhaldi. Samsett mynd/mbl.is/Eggert/Sigurður Bogi

Þrír sitja enn í gæslu­v­arðhaldi í rann­sókn lög­reglu á mann­dráps, fjár­kúg­un­ar- og frels­is­svipt­ing­ar­máli vegna manns á sjö­tugs­aldri sem fannst þungt hald­inn í Gufu­nesi og lést á sjúkra­húsi stuttu síðar, þann 10. mars.

Sæv­ar Þór Jóns­son, lögmaður yngsta sak­born­ings­ins í mál­inu sem er átján ára, seg­ir að óskað hafi verið eft­ir fram­haldi á gæslu­v­arðhaldi yfir hon­um sem héraðsdóm­ur hafi samþykkt. Þeim úr­sk­urði hef­ur verið afrýjað til Lands­rétt­ar.

„Veru­lega íþyngj­andi“ 

Lands­rétt­ur stytti gæslu­v­arðhalds­úrsk­urð yfir hon­um um viku eft­ir að lög­regla hafði óskað eft­ir tveggja vikna gæslu­v­arðhaldi til 16. apríl. Fyr­ir hef­ur hann verið í gæslu­v­arðhaldi í þrjár vik­ur.

„Lög­regl­an er að fara fram á gæslu­v­arðhald til 9. apríl en ég tel að málið sé það vel upp­lýst að það sé eng­in ástæða til að hafa um­bjóðanda minn í gæslu­v­arðhaldi í viku í viðbót. Þetta er veru­lega íþyngj­andi fyr­ir minn um­bjóðanda sem er ung­ur að árum,“ seg­ir Sæv­ar.

„Það hef­ur reynst hon­um veru­lega erfitt að vera í ein­angr­un og gæslu­v­arðhaldi. Auðvitað er málið al­var­legt en málið er það vel upp­lýst að það eru ekki for­send­ur til að hafa hann í gæslu­v­arðhaldi að mínu mati.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert