Hækka í verði: Dýrustu og ódýrustu páskaeggin

Það styttist í páskana og eru landsmenn margir hverjir farnir …
Það styttist í páskana og eru landsmenn margir hverjir farnir að huga að súkkulaðieggjakaupum, hafi þeir ekki þegar fest kaup á slíku. mbl.is/Árni Sæberg

Páska­egg sæl­gæt­is­gerðar­inn­ar Freyju eru dýr­ari en egg­in frá Góu og Nóa ef litið er til kílóverðs. Þá hækka Freyju­egg­in jafn­framt mest í verði á milli ára ef tekið er mið af verðum í Bón­us og Krón­unni, eða um 17%.

Páska­egg Góu hækkuðu um 13% í verði en egg­in frá Nóa Síríus hækkuðu um 9%.

Í lág­vöru­verðsversl­un­um hækk­ar meðal­verð á páska­eggj­um um 12-17% milli ára. Minnst hækk­ar verð í Kram­búðinni og 10-11, en mest hækk­ar það í Extra og Kjör­búðinni, um 25-27% milli ára.

Þetta sýn­ir verðlags­eft­ir­lit ASÍ en niður­stöðurn­ar eru úr könn­un sem fram­kvæmd var síðasta laug­ar­dag. Þess ber að geta að dag­inn eft­ir að könn­un fór fram lækkaði Nettó verð á páska­eggj­um um 3,6% svo þau eru á svipuðu verði og þau sem fást í Krón­unni.

Egg­in dýr­ust í Ice­land

Lægsta verðið á páska­eggj­um var að finna í Prís en úr­valið þar bauð upp á fjög­ur egg frá Freyju, þrjú frá Góu og sex frá Nóa Siríus.

Hæsta verðið var að jafnaði í Ice­land en þar voru þau að meðaltali helm­ingi dýr­ari en þau egg sem voru ódýr­ust í öðrum versl­un­um.

Verðin á súkkulaðieggj­un­um í Bón­us og Krón­unni voru ör­litlu hærri en lægstu verðin. Þær versl­an­ir voru jafn­framt með mesta úr­valið, eða 45-48 ís­lensk páska­egg.

Í Fjarðar­kaup fundu verðlags­eft­ir­lits­menn ASÍ 39 ís­lensk páska­egg. Voru þau að meðaltali rúm­um 3% frá lægsta verði.

Þess ber að geta að páska­egg­in í frí­höfn­inni á Kefla­vík­ur­flug­velli voru ekki ódýr­ari en þau sem hægt er að fá í versl­un­um á höfuðborg­ar­svæðinu. Nóa páska­egg nr. 4 kostaði 13% meira þar en í Prís. Þá voru kass­ar með fjór­ir litl­um páska­eggj­um í Frí­höfn­inni dýr­ari þar en í Bón­us.

Egg Freyju dýr­ust 

Þegar kílóverð súkkulaðieggj­anna er borið sam­an kem­ur í ljós að Freyjupáska­egg­in eru dýr­ust. Næst á eft­ir koma egg­in frá Nóa en egg­in frá Góu reka lest­ina.

„Bestu kaup­in – ef planið er að torga kíló­grammi af sæt­ind­um – er Risa­eggið frá Bón­us eða Góu páska­egg nr. 11. Í viðráðan­legri stærðum eru sér­fram­leiddu versl­ana­egg­in hag­kvæm­ust. Bón­us egg, Krónu egg og Okk­ar egg í Nettó kosta reynd­ar 17-20% meira á kílóið, en eru mun smærri,“ ráðlegg­ur ASÍ í verðlags­eft­ir­lit­inu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert