Alvarlegt frávik á einum bæ

Eftir að hafa yfirfarið gögnin, greint þau atvik sem talin …
Eftir að hafa yfirfarið gögnin, greint þau atvik sem talin voru geta brotið í bága við lög um velferð dýra og metið áhrif þeirra á hryssurnar mat stofnunin sem svo að á einum bæ hafi komið fram alvarlegt frávik varðandi meðferð og umgengni við hryssur. mbl.is/Árni Sæberg

Mat­væla­stofn­un hef­ur lokið rann­sókn sinni á meintri illri meðferð hryssna við blóðtöku. Stofn­un­inni barst til­kynn­ing frá dýra­vernd­ar­sam­tök­un­um Ani­mal Welfare Foundati­on (AWF) og Tierschutzbund Zürich (TBZ). Einnig bár­ust fjöldi mynd­banda sem tek­in voru upp á bæj­um þar sem blóðtaka úr hryss­um fór fram.

Eft­ir að hafa yf­ir­farið fram­kom­in gögn, greint þau at­vik sem tal­in voru geta brotið í bága við lög um vel­ferð dýra og metið áhrif þeirra á hryss­urn­ar mat stofn­un­in sem svo að á ein­um bæ hafi komið fram al­var­legt frá­vik varðandi meðferð og um­gengni við hryss­ur.

Þar sem rekstr­araðili blóðtök­unn­ar ber ábyrgð meðan á blóðtöku stend­ur á bæn­um óskaði Mat­væla­stofn­un eft­ir af­stöðu hans til máls­ins.

Í ljósi viðbragða og úr­bóta rekstr­araðilans til að slík at­vik eigi sér ekki stað og máls­at­vika í heild sinni, sem sýna að starf­sem­in var heilt yfir í sam­ræmi við sett­ar verkla­g­regl­ur, hef­ur Mat­væla­stofn­un ákveðið að loka mál­inu.

Starfsaðferðir dýra­lækna skoðaðar

Í svör­um rekstr­araðilans kom fram að kvört­un­ar­fer­ill hefði verið virkjaður gagn­vart viðkom­andi bæ sem og að ein­stak­ling­ur sem aðstoðaði við rekst­ur hryssa á bæn­um hefði gengið of langt í fram­komu sinni.

Í úr­bóta­áætl­un seg­ir að ein­stak­ling­ur­inn muni ekki koma að meðferð hrossa á veg­um rekstr­araðilans meðan heim­ild hans til blóðtöku er í gildi.

Þá skoðaði Mat­væla­stofn­un sér­stak­lega starfsaðferðir dýra­lækna við blóðtöku á mynd­bönd­un­um.

Í ein­staka til­viki hefði dýra­lækn­ir geta brugðist hraðar við þegar blóðtaka gekk ekki sem skyldi, en heild­armat stofn­un­ar­inn­ar er að þær starfsaðferðir sem hafi verið viðhafðar hafi verið inn­an viðmiða sem gilda um starfs­hætti, verklag og ábyrgð dýra­lækna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert