Vegagerðin varar við hálku og éljagangi á Hellisheiði, Þrengslum og Mosfellsheiði en eftir langan hlýindakafla hefur kólnað í veðri og næstu daga er spáð snjókomu og éljagangi víða um land.
Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar, umferðin.is en þar segir að hálka sé á Bröttubrekku og hálkublettir á Holtavörðuheiði, Vatnaleið, Fróðárheiði, Laxárdalsheiði og Svínadal.
Á Vestfjörðum er snjóþekja og skafrenningur á Steingrímsfjarðarheiði, hálka á Hálfdán en hálkublettir á Þröskuldum, Gemlufallsheiði, Dynjandisheiði, Kleifaheiði, Mikladal, norður í Árneshreppi og víðar.