Tvær konur skiptu með sér 160 milljónum

Lottópott­ur­inn síðasta laug­ar­dag var sjö­fald­ur og voru rétt tæp­ar 160 millj­ón­ir í pott­in­um sem er nýtt met. Rúm­lega 20 þúsund manns fengu vinn­ing í út­drætt­in­um en tvær kon­ur, báðar í kring­um fer­tugt, voru þó heppn­ast­ar allra þar sem þær voru með all­ar fimm töl­urn­ar rétt­ar og skiptu því fyrsta vinn­ingi á milli sín.

Fengu þær rúm­ar 79,2 skatt­frjáls­ar millj­ón­ir króna í vinn­ing hvor.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Íslenskri get­spá.

„Önnur er með miðann sinn í áskrift og sagðist aldrei skoða miðann sinn og í raun bara aldrei spá neitt í hann, hún sæi þó vinn­inga lagða inn á kortið sitt við og við. Því kom sím­talið sem hún fékk frá Íslenskri get­spá á mánu­dags­morg­un henni skemmti­lega á óvart. Kon­an, sem á stóra fjöl­skyldu bæði af börn­um og systkin­um sagðist ætla að halda vinn­ingn­um leynd­um og að fyrsta verk yrði að greiða upp hús­næðislánið og svo njóta þess að sjá fjár­hags­á­hyggj­urn­ar hverfa.

Hinn vinn­ings­haf­inn hafði keypt sinn miða í lottóapp­inu eft­ir að hafa fengið áminn­ingu í sím­ann um sjö­fald­an fyrsta vinn­ing. Ákvað hún því að festa kaup á miða og valdi töl­urn­ar sjálf af handa­hófi. Henn­ar fyrsta svar um í hvað pen­ing­arn­ir yrðu notaðir var það sama og hjá hinum vinn­ings­haf­an­um: að greiða strax niður hús­næðislánið og svo að geta gert eitt­hvað skemmti­legt með fjöl­skyld­unni,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert