Kona um þrítugt sem var í fyrrakvöld úrskurðuð í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á andláti manns í heimahúsi á höfuðborgarsvæðinu á föstudaginn er dóttir mannsins samkvæmt heimildum mbl.is.
Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í morgun segir að snemma á föstudagsmorgun hafi lögreglunni borist tilkynning um meðvitundarlausan karlmann í heimahúsi á höfuðborgarsvæðinu. Viðbragðsaðilar héldu strax á staðinn, en karlmaðurinn var þungt haldinn þegar að var komið. Hann var fluttur á slysadeild og lést þar síðar um daginn.
Elín Agnes Kristínardóttir, hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu. En hún segir að rannsókn þess standi yfir.