„10 þúsund sipp hljómaði álitleg tala“

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Viðar Stef­áns­son, prest­ur í Landa­kirkju í Vest­manna­eyj­um, gerði sér lítið fyr­ir og sippaði rúm­lega 10 þúsund sipp á í dag, föstu­dag­inn langa, til styrkt­ar Krabba­vörn. 

    Er blaðamaður mbl.is heyrði í séra Viðari var hann að borða kol­vetn­in sín eft­ir að hafa klárað sippið í safnaðar­heim­ili kirkj­unn­ar á rúm­lega tveim­ur klukku­stund­um. „Þetta bara gekk mjög vel.“

    Séra Viðar Stefánsson í safnaðarheimili Landakirkju í dag.
    Séra Viðar Stef­áns­son í safnaðar­heim­ili Landa­kirkju í dag. mbl.is/Ó​skar P. Friðriks­son

    Hug­mynd­in fædd­ist í janú­ar er Viðar setti sér það mark­mið á ár­inu að synda Guðlaugs­sundið sem er 6 kíló­metr­ar. Sundið kláraði hann í mars en sippið beið fram í apríl. 

    „Þegar maður var að þjálfa sig aðeins fyr­ir það – af því það er nú betra að vera í aðeins meira en engu formi – þá tók maður eft­ir því að það fór mjög mik­ill tími í þjálf­un­ina og hugsaði hvort maður gæti ekki nýtt þessa hreyf­ingu og tím­ann til góðs. Þá kom þessi hug­mynd að hreyfa sig til þess að styrkja gott mál­efni,“ seg­ir hann en Krabba­vörn er krabba­meins­fé­lag Vest­manna­eyja. Það veit­ir krabba­meins­greind­um og aðstand­end­um þeirra fjöl­breytta þjón­ustu.

    „Ég hef nú sippað svo­lítið und­an­far­in ár – en með hlé­um samt – því valdi ég sippið, og 10 þúsund sipp hljómaði álit­leg tala.“

    Ferm­ing­ar­börn­in kusu

    Viðar var í fyrstu ekki viss um hvaða góðgerðarfé­lag ætti að verða fyr­ir val­inu og ákvað því að leyfa ferm­ing­ar­börn­um kirkj­unn­ar að greiða at­kvæði.

    Börn­in fengu val á milli þriggja fé­laga og fékk Krabba­vörn flest at­kvæði. 

    Það hlýt­ur að vera mikið að gera hjá þér um þess­ar mund­ir, mátt­irðu al­veg vera að þessu á föstu­dag­inn langa?

    „Ég viður­kenni nú að ég á að vera með at­höfn á eft­ir, klukk­an fimm,“ seg­ir prest­ur­inn og hlær við. 

    „En, jú jú, þetta er nátt­úru­lega bara viss vertíð hjá okk­ur.“

    Byrjaði að finna til um sjö þúsund

    Sippið byrjaði stuttu eft­ir messu sem hófst klukk­an 11 í kirkj­unni. Viðar var ekki með mess­una í morg­un, en messaði í gær­kvöldi. 

    Þór­anna M. Sig­ur­bergs­dótt­ir, formaður Krabba­varn­ar, hélt stutta tölu áður en rokk­tónlist var sett á fón­inn og Viðar byrjaði að sippa.

    Viðar sippaði nokkur sipp til viðbótar til öryggis.
    Viðar sippaði nokk­ur sipp til viðbót­ar til ör­ygg­is. mbl.is/Ó​skar P. Friðriks­son

    Sími sem hann var með í vas­an­um taldi hopp­in og ákvað hann því að sippa 500 til viðbót­ar til þess að vera al­veg viss um að sipp­in yrðu 10 þúsund. Sipp­in urðu að lok­um um 10.800.

    Líkt og áður sagði tók sippið rúm­ar tvær klukku­stund­ir og seg­ir hann það hafa verið það sem hann bjóst við. 

    „Þegar ég var bú­inn með sjö þúsund sipp þá fór maður aðeins að finna fyr­ir skrokkn­um á sér meira. En svo þegar maður sá að mark­miðið nálgaðist þá hætti maður að pæla í því,“ seg­ir Viðar. 

    Sippið tók um tvær klukkustundir.
    Sippið tók um tvær klukku­stund­ir. mbl.is/Ó​skar P. Friðriks­son

    Meira en 400 þúsund krón­ur hafa safn­ast fyr­ir Krabba­vörn. „Það er gam­an að sjá hvað við get­um gefið mikið af okk­ur ef við bara vilj­um,“ seg­ir séra Viðar að lok­um og send­ir Krabba­vörn­um þakk­ir fyr­ir að hafa tekið vel í hug­mynd­ina og þeim sem kíktu á hann í safnaðar­heim­il­inu.

    Hægt er að styrkja Krabba­vörn í Vest­manna­eyj­um með því að leggja inn á styrkt­ar­reikn­ing­inn: 

    Reikn­is­núm­er: 0582-04-250247

    Kennitala: 651090-2029. 

    mbl.is
    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert