„Hæð við norðausturströnd Grænlands og lægðasvæði suður í hafi beina til okkar austlægum vindum, stinningskalda allra syðst, en annars mun hægari.“
Svona hefjast hugleiðingar veðurfræðings Veðurstofu Íslands í morgunsárið.
Í dag verður skýjað að mestu austanlands og á Vestfjörðum og verða þar líkur á lítils háttar éljum.
Á Suðurlandi og Vesturlandi verður yfirleitt léttskýjað. Yfir daginn verður hiti á bilinu frá frostmarki upp í 9 stig. Mildast verður suðvestan til en víða næturfrost.
„Á morgun, þriðjudag og næstu daga þar á eftir er svo útlit fyrir keimlíkt, en hlýnandi veður og fer líklega að rigna sunnan til þegar nær dregur helginni,“ segir í hugleiðingunum.
Allt að 13 stiga hita er spáð á sumardaginn fyrsta sem er á fimmtudaginn.