Í dag verður austlæg eða breytileg átt 3-10 m/s. Skýjað verður að mestu norðan- og austanlands, og sums staðar dálítil él en yfirleitt bjart á suðvestanverðu landinu.
Hitinn verður nálægt frostmarki í morgunsárið en eftir hádegi verður hitinn 0 til 9 stig, hlýjast suðvestan til.
Á morgun verða austan 5-13 m/s og skýjað syðst á landinu, en annars hægari og bjart veður. Hiti verður 2 til 10 stig að deginum, hlýjast sunnan og suðvestan til.