Hitinn gæti náð 15 stigum

Kort Veðurstofu Íslands klukkan 15 í dag.
Kort Veðurstofu Íslands klukkan 15 í dag. Kort/Veðurstofa Íslands

Sum­arið heils­ar með góðu veðri víða um land og gæti hit­inn náð allt að 15 stig­um á Suðvest­ur­landi í dag.

Í dag verða aust­an og suðaust­an 8-15 m/​s sunn­an­lands en ann­ars hæg­ari vind­ur. Það verður lít­ils­hátt­ar væta á Suðaust­ur­landi og á Aust­fjörðum en lengst af létt­skýjað um landið norðan- og vest­an­vert. Hit­inn verður á bil­inu 5 til 15 stig og verður hlýj­ast suðvest­an til.

Á morg­un verða suðaust­an 5-13 m/​s. Það verður rign­ing suðaust­an­lands, en ann­ars væta með köfl­um, en lengst af þurrt norðaust­an til. Hit­inn verður 5 til 13 stig og verður sval­ast við aust­ur­strönd­ina.

Veður­vef­ur mbl.is

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert