Fimm úrskurðir um brottvísanir

Landsréttur.
Landsréttur. mbl.is/Jón Pétur

Alls hafa fallið fimm úr­sk­urðir í Lands­rétti und­an­farna daga þar sem út­lend­ing­um er vísað af landi brott. Í þrem­ur þess­ara til­vika er um að ræða hæl­is­leit­end­ur sem dvalið hafa ólög­lega hér á landi, en í einu er um að ræða lit­háísk­an mann sem fall­ist var á að fram­seld­ur yrði til síns heima­lands á grund­velli evr­ópskr­ar hand­töku­skip­un­ar. Gengu tveir úr­sk­urðir í Lands­rétti um þann mann.

Maður­inn hef­ur verið bú­sett­ur hér á landi und­an­far­in ár, en dóm­ari í Viln­íus í Lit­há­en gaf út hand­töku­skip­un hon­um á hend­ur í fe­brú­ar sl., en maður­inn hafði verið dæmd­ur í átta ára fang­elsi fyr­ir þrjú kyn­ferðis­brot gegn barni. Átti hann eft­ir að afplána fjög­ur ár og sex mánuði af dóm­in­um. Hann var svo í öðru máli hneppt­ur í gæslu­v­arðhald svo hann yrði til­tæk­ur þegar til brott­flutn­ings kæmi.

Í hinum þrem­ur til­vik­un­um voru út­lend­ing­arn­ir hneppt­ir í gæslu­v­arðhald svo þeir hlypust ekki á brott áður en þeir yrðu flutt­ir burt af land­inu.

Í einu þess­ara til­vika var um að ræða mann sem nefnd­ur er X í úr­sk­urðinum og á að baki sér nokk­urn brota­fer­il hér á landi og hef­ur áður gengið und­ir nöfn­un­um X1, Xw2 og X3 í dóms­skjöl­um. Þjóðerni viðkom­andi kem­ur ekki fram. Hon­um hef­ur ít­rekað verið gert að yf­ir­gefa landið og hann hef­ur ekki virt end­ur­komu­bann á Schengen-svæðið. Hann hef­ur nokk­urn brota­fer­il að baki sér, hef­ur verið dæmd­ur fyr­ir brot á um­ferðarlög­um, lög­um um áv­ana- og fíkni­efni og al­menn­um hegn­ing­ar­lög­um.

Nán­ari um­fjöll­un má finna í Morg­un­blaðinu í dag. Einnig má nálg­ast hana án end­ur­gjalds í Mogg­an­um, nýju appi Morg­un­blaðsins og mbl.is.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert