Fyrsta stóra farþegaskipið

Flest stærstu skemmtiferðaskipin leggjast þar að bryggju. Þröngt verður um …
Flest stærstu skemmtiferðaskipin leggjast þar að bryggju. Þröngt verður um starfsemina þar sem verið er að byggja farþegamiðstöð. mbl.is//Eggert

Fyrsta stóra farþega­skip sum­ars­ins er vænt­an­legt til Reykja­vík­ur fimmtu­dag­inn 1. maí.Það heit­ir Norweg­i­an Pe­arl og er 93.530 brútt­ót­onn. Það get­ur tekið 2.394 farþega og í áhöfn eru 1.099 manns. Áætlað er að skipið legg­ist að Skarfa­bakka í Sunda­höfn klukk­an 9 að morgni.

Með komu Norweg­i­an Pe­arl má segja að hin eig­in­lega vertíð skemmti­ferðaskip­anna hefj­ist þetta sum­arið.

Fjöldi skipa­koma verður í maí og smám sam­an fer þeim fjölg­andi eft­ir því sem líður á sum­arið. Mesta ann­ríkið verður í júlí og ág­úst. Síðasta skipið er bókað 27. októ­ber.

Í sum­ar eru bókaðar tæp­lega 240 kom­ur farþega­skipa/​skemmti­ferðaskipa til Reykja­vík­ur. Gert er ráð fyr­ir tæp­lega 310 þúsund farþegum sem er ör­lít­il fækk­un frá því í fyrra þegar farþega­fjöld­inn var 321.966. Áætlan­ir gera ráð fyr­ir að skiptif­arþegar verði um 160 þúsund sem er fjölg­un frá ár­inu áður þegar þeir voru 156.454.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert