Reyndu að brjótast inn í hraðbanka

Tveir menn reyndu að brjótast inn í hraðbanka.
Tveir menn reyndu að brjótast inn í hraðbanka. Ljósmynd/Colourbox

Tveir menn reyndu að brjót­ast inn í hraðbanka en þeir höfðu ekki er­indi sem erfiði og voru stöðvaðir af lög­reglu við verknaðinn. Báðir voru þeir vistaðir í fanga­klefa í þágu rann­sókn­ar­inn­ar.

Þetta er meðal þess sem kem­ur fram í dag­bók lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu vegna verk­efna henn­ar frá klukk­an 17 í gær til 5 í morg­un. Alls eru 51 mál bókuð í kerf­um lög­reglu á tíma­bil­inu og gista 11 í fanga­geymsl­um lög­regl­unn­ar.

Lög­regl­an á lög­reglu­stöð 2, sem sinn­ir Hafnar­f­irði, Garðabæ og Álfta­nesi, fékk til­kynn­ingu um eld á iðnaðarsvæði. Þar hafði kviknað í göml­um raf­hlöðum. Tjón varð lítið þar sem eld­ur­inn kviknaði ut­an­dyra. Slökkviliðið var kallað á staðinn sem slökkti eld­inn greiðlega.

Sex öku­menn voru kærðir fyr­ir of hraðann akst­ur og þá var lög­regla kölluð til vegna um­ferðaró­happs. Ökumaður var grunaður um akst­ur und­ir áhrif­um áfeng­is og var því hand­tek­inn og vistaður í fanga­klefa í þágu rann­sókn­ar máls­ins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert