Segir styrkina hafa skilað sér seint og illa

Vorhretið á Norðurlandi í júní í fyrra lék marga bændur …
Vorhretið á Norðurlandi í júní í fyrra lék marga bændur grátt. Urðu margir fyrir þungum búsifjum, kali í túnum, fjárfelli og rýrari afurðum mbl.is/Atli Vigfússon

Seina­gang­ur við efnd­ir lof­orða rík­is­stjórn­ar­inn­ar við af­greiðslu styrkja til bænda vegna kal­skemmda síðasta vor og upp­skeru­brests af völd­um þeirra sæt­ir gagn­rýni og seg­ir Jón Þór­ar­ins­son, bóndi á Hnjúki í Skíðadal, í sam­tali við Morg­un­blaðið að styrk­irn­ir hafi skilað sér bæði seint og illa.

Síðan tel­ur hann að út­lit sé fyr­ir að það sama verði uppi á ten­ingn­um vegna afurðatjóns sem bænd­ur urðu fyr­ir af völd­um fann­ferg­is og kuldatíðar í júní í fyrra.

Hann seg­ir skrýtið að ekk­ert skuli heyr­ast frá Bænda­sam­tök­un­um vegna þessa.

„Mér finnst al­gert lág­mark að við sem urðum fyr­ir tjóni og sótt­um um bæt­ur fáum ein­hver svör,“ seg­ir hann og tel­ur að al­mennt séð megi gera ráð fyr­ir að það afurðatjón sem bænd­ur urðu fyr­ir vegna veðurfars og upp­skeru­brests sé veru­legt. Afurðirn­ar geti hafa numið um þriðjungi þess sem bú­ast megi við í eðli­legu ár­ferði.

Í byrj­un apríl til­kynnti at­vinnu­vegaráðuneytið að 725 millj­ón­ir yrðu veitt­ar til greiðslu bóta vegna tjóns sem varð í kuldakast­inu síðasta vor og tek­ur það bæði til bóta vegna kal- og upp­skerutjóns og afurðatjóns bænda.

„Inni í þessu kuldakaststjóni er gert ráð fyr­ir tjóni vegna afurðataps. Við erum ekki enn bún­ir að sjá út­færsl­una á greiðsl­un­um, enda hafa þær ekki átt sér stað. En eins og málið var kynnt fyr­ir okk­ur á að mæta afurðatjóni meðal ann­ars með þess­um bót­um,“ seg­ir Trausti Hjálm­ars­son formaður Bænda­sam­tak­anna en hlut­fallið á milli afurðatjóns og kaltjóns ligg­ur ekki fyr­ir að sögn hans.

Trausti seg­ir öll­um frjálst að gagn­rýna Bænda­sam­tök­in, en minn­ir á að hann hafi verið á funda­ferð með at­vinnu­vegaráðherra fyrr í þess­um mánuði þar sem rætt var við bænd­ur og kunn­gjört um greiðslu viðbót­ar­bót­anna.

Hann seg­ir að best hefði verið ef gripið hefði verið til fram­an­greindra aðgerða fyrr og málið klárað fyrr, en sam­kvæmt upp­lýs­ing­um sín­um sé stefnt að greiðslu bót­anna í maí nk.

Hvað varðar upp­skeru­brest sem bú­ast megi við í sum­ar vegna kaltjóns síðasta vor seg­ir Trausti að þær bæt­ur sem til­kynnt hafi verið um nái ekki til þess tjóns, enda sé það ekki orðið. Hins veg­ar muni sam­tök­in fylgj­ast með fram­vindu mála og ekki væri óeðli­legt að reyna að ná sam­tali við ráðuneytið varðandi það þegar staða mála ligg­ur fyr­ir.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert