„Þetta var ógeðslegt“

Heba og maður hennar í dimmri lyftunni í Cabo Roig …
Heba og maður hennar í dimmri lyftunni í Cabo Roig í rafmagnsleysinu í gær þar sem þau fengu að dúsa þar til fórnfús nágranni fór fótgangandi á næstu lögreglustöð. Lögreglan hringdi í slökkviliðið sem kom í forgangsakstri og skrúfaði lyftuna handvirkt niður á næstu hæð. Ljósmynd/Aðsend

Heba Gísla­dótt­ir, sjúkra­liði á eft­ir­laun­um í spænska strand­bæn­um Cabo Roig, þar sem hann hvíl­ir í hæg­látri kyrrð sinni spöl­korn suður af Tor­revieja á aust­ur­strönd­inni, var ekk­ert að skafa af því í viðtali við mbl.is eft­ir þau hjón­in sátu föst í tvær klukku­stund­ir í lyftu húss­ins sem þau búa í níu mánuði á ári þegar raf­magn fór af mest­öll­um Íberíu­skag­an­um í gær.

„Við vor­um að fara í versl­un­ar­túr og vor­um ný­kom­in inn í lyft­una þegar raf­magnið fór,“ seg­ir Heba, en þau hjón búa uppi á þriðju hæð í lyftu­húsi, í íbúð sem Breti nokk­ur leig­ir þeim frá sept­em­ber til maí. Sumr­un­um verja þau uppi á Íslandi að svo miklu leyti sem hægt er að tala um sum­ar þar leng­ur.

„Ég hringdi neyðar­bjöll­unni hvað eft­ir annað og loks­ins komu ein­hver hjón sem sátu úti í sund­laug­arg­arðinum og heyrðu í bjöll­unni,“ held­ur Heba áfram frá­sögn­inni. Hefðu flest­ir talið að þar með væri málið leyst, en svo var al­deil­is ekki þegar raf­magns­leysi herjaði á nær all­an næst­stærsta skaga heims­álf­unn­ar Evr­ópu.

Þraut­góð á rauna­stund

„Þau reyndu að hringja í lög­regl­una, slökkviliðið og neyðarþjón­ust­una fyr­ir lyft­urn­ar en náðu ekki í neinn. Við héld­um fyrst að raf­magns­leysið væri bara í þessu húsi,“ seg­ir Íslend­ing­ur­inn, en annað átti held­ur bet­ur eft­ir að vitr­ast öll­um þeim er fylgd­ust með heims­frétt­un­um í gær þar sem raf­magns­leysið á Spáni og í Portúgal var víðast fyrsta og efsta frétt.

Þau hjón­in voru bara tvö í lyft­unni – sem bet­ur fer því plássið þar var ekki til að hrópa húrra fyr­ir eins og flest­ir þekkja sem tekið hafa lyft­ur í spænsk­um fjöl­býl­is­hús­um. Stund­um er stig­inn ein­fald­lega betri – jafn­vel fljót­legri.

Á meðan allt lék í lyndi. Hjónin búa í Cabo …
Á meðan allt lék í lyndi. Hjón­in búa í Cabo Roig níu mánuði á ári og una hag sín­um vel ef frá er talið at­vikið í gær. Heba seg­ir stemmn­ing­una hafa verið und­ar­lega á veit­ingastað í hverf­inu og and­rúms­loftið lævi­blandið. Al­menn­ing­ur hafi skellt skuld­inni á Pútín. Og hver veit, spænsk yf­ir­völd þegja enn þunnu hljóði um hvað í ósköp­un­um gerðist þegar hátt í 60 millj­ón­ir Evr­ópu­búa urðu skyndi­lega án raf­magns um há­bjart­an vor­dag í gær. Ljós­mynd/​Aðsend

„Við feng­um bara að heyra „því miður, við get­um ekk­ert gert“ og þá fóru manni að fall­ast hend­ur, þá fór inni­lok­un­ar­kennd­in að gera vart við sig,“ held­ur Heba áfram frá­sögn sinni.

Landið tók að rísa þegar fórn­fús ná­granni þeirra ís­lensku hjón­anna fór fót­gang­andi á næstu lög­reglu­stöð þaðan sem lög­regla hringdi ein­fald­lega í slökkviliðið. „Svo frétti ég það eft­ir á frá vina­fólki okk­ar að slökkviliðsbíll­inn hefði komið í for­gangsakstri með öll ljós og sír­en­ur og þeir voru tvær mín­út­ur að ná okk­ur út,“ seg­ir Heba frá.

„Pútín, Pútín!“

Skrúfaði slökkviliðið lyft­una hand­virkt niður þar til þau hjón­in gátu skriðið út úr henni og urðu frels­inu feg­in. „Þetta var ógeðslegt, pínu­lít­il lyfta og þetta voru tveir tím­ar. Verst var þegar maður­inn kom og kallaði til okk­ar að þau gætu ekk­ert gert, þá bjugg­umst við bara við því að við yrðum þarna um ald­ur og ævi,“ seg­ir Heba.

Þau hafi svo farið á veit­ingastað skammt frá og hitt þar fjölda Íslend­inga, en ásamt Bret­um og Írum hitt­ast Íslend­ing­ar lík­ast til einna mest fyr­ir á göt­um Cabo Roig.

„And­rúms­loftið var ofboðslega skrýtið, all­ir kölluðu bara „Pútín, Pútín!“ og þetta var bara und­ar­legt,“ seg­ir Heba frá og undr­ast enn meira að spænsk yf­ir­völd hafi enn ekki gefið út nein­ar hald­bær­ar skýr­ing­ar á um­fangs­mesta raf­magns­leysi síðari tíma í Evr­ópu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert