„Erum á góðri leið“

Þrír sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins.
Þrír sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Samsett mynd/mbl.is/Eggert/Sigurður Bogi

Að sögn Sveins Kristjáns Rún­ars­son­ar, yf­ir­lög­regluþjóns hjá lög­regl­unni á Suður­landi, miðar rann­sókn rann­sókn á máli er varðar meinta frels­is­svipt­ingu, fjár­kúg­un og mann­dráp sem upp kom 10. mars síðastliðinn vel en maður á sjö­tugs­aldri fannst þungt hald­inn í Gufu­nesi og lést á sjúkra­húsi stuttu síðar.

Þrír sitja í gæslu­v­arðhaldi í tengsl­um við málið og renn­ur það út þann 9. maí næst­kom­andi en á tíma­bili voru sjö í varðhaldi vegna máls­ins.

„Rann­sókn­in geng­ur vel. Við erum enn að safna sam­an gögn­um í mál­inu og púsla því en við erum á góðri leið og get­um von­andi skilað mál­inu af okk­ur sem fyrst,“ seg­ir Sveinn í sam­tali við mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert