„Kastar rýrð á lögregluna“

Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna.
Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna. mbl.is/Sigurður Bogi

Fjöln­ir Sæ­munds­son, formaður Lands­sam­bands lög­reglu­manna, seg­ir frétt­ir um njósn­ir Lúðvíks Krist­ins­son­ar vera áfall og að það blasi við að þær hafi áhrif á traust til lög­regl­unn­ar. 

Greint var frá því að varðstjóri hjá um­ferðardeild lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu væri grunaður um að hafa njósnað um fólk gegn greiðslu. Málið nær aft­ur til árs­ins 2012.

Lög­reglumaður­inn sem um ræðir er Lúðvík Krist­ins­son. Hann hef­ur verið leyst­ur und­an vinnu­skyldu á meðan málið er til rann­sókn­ar hjá rík­is­sak­sókn­ara.

„Ofboðslegt áfall fyr­ir okk­ur“

„Þetta er bara ofboðslegt áfall fyr­ir okk­ur. Maður er eig­in­lega miður sín,“ seg­ir Fjöln­ir í sam­tali við mbl.is, þegar hann er spurður út í viðbrögð við mál­inu.

„Maður vissi um þetta fyr­ir­tæki hjá Jóni Ótt­ari og Guðmundi Hauki á sín­um tíma, en óraði ekki fyr­ir að þetta væri svona. Maður vissi að þeir hefðu verið að vinna fyr­ir ein­hverja, en það kem­ur gjör­sam­lega í opna skjöldu að starf­andi lög­reglumaður hafi verið starf­andi með þeim.“

Þar vís­ar Fjöln­ir til fyr­ir­tæk­is­ins PPPSF, sem var stofnað af fyrr­ver­andi lög­reglu­mönn­un­um Jóni Ótt­ari Ólafs­syni af­brota­fræðingi og Guðmundi Hauki Gunn­ars­syni lög­manni sem lést árið 2011.

Störfuðu þeir hjá sér­stök­um sak­sókn­ara þegar fyr­ir­tækið var stofnað. Þeir voru kærðir fyr­ir að stela gögn­um og selja gögn frá embætt­inu til þrota­bús úti í bæ en rann­sókn­in var síðar lát­in niður falla.

Í kjöl­far um­fjöll­un­ar Kveiks hef­ur njósna­fyr­ir­tækið komið aft­ur í kast­ljósið, þar sem Lúðvík er sagður hafa aðstoðað fyr­ir­tækið við njósn­a­starf­semi sem at­hafnamaður­inn Björgólf­ur Thor Björgólfs­son er sagður hafa fjár­magnað.

Hef­ur áhrif á traust

Aðspurður seg­ir Fjöln­ir að hann ótt­ist að málið hafi áhrif á hvernig al­menn­ing­ur líti á lög­regl­una. Þá sé málið mikið áfall fyr­ir um­ferðardeild­ina, ef satt reyn­ist að Lúðvík hafi sinnt öðrum störf­um, en jafn­framt vís­ar hann til 32. grein­ar lög­reglu­laga:

„Þú þarft leyfi hjá lög­reglu­stjóra til að vinna önn­ur störf og hann met­ur hvort þú meg­ir vinna þau, allt eft­ir því um hvaða störf er að ræða.“

„Þetta er tölu­vert áfall fyr­ir okk­ur öll. Þetta er lög­reglumaður sem hef­ur lengi starfað hjá lög­regl­unni og marg­ir þekkja. Þetta er koll­egi og vin­ur og hef­ur áhrif á alla sem með hon­um starfa. Ég held að það gefi auga leið að auðvitað hef­ur þetta áhrif á traust til lög­regl­unn­ar. Það er bara óhjá­kvæmi­legt.“

Á rétt á ým­iss kon­ar þjón­ustu

Er eitt­hvað hlut­verk sem Lands­sam­bandið sinn­ir varðandi næstu skref?

„Það er þannig að hann er nátt­úru­lega fé­lags­maður hjá okk­ur og borg­ar sín fé­lags­gjöld, þannig að hann á rétt á ým­iss kon­ar þjón­ustu frá sam­band­inu. Ef hann myndi t.d. óska eft­ir lög­fræðingi, þá hef­ur hann rétt á að sækja um styrk til sam­bands­ins til að greiða hluta af þeim kostnaði,“ seg­ir Fjöln­ir og bæt­ir við:

„Það er nátt­úru­lega í svona aðstæðum sem við þurf­um að huga að hags­mun­um fé­lags­manna okk­ar og and­legri líðan þeirra. Auðvitað höf­um við áhyggj­ur af þeim sem lenda í svona og vilj­um halda utan um þá svo ekki fari illa.“

„Hrygg og hneyksluð“

Hann seg­ir sam­bandið því vera í hálf­gerðu tvö­földu hlut­verki:

„Við erum að halda utan um okk­ar fé­lags­mann og passa hann, þó að hann hafi gert mis­tök og orðið á. En svo erum við líka bara hrygg og hneyksluð í hina rönd­ina.“

Fjöln­ir seg­ir að koma þurfi í ljós hvort Lúðvík verði ákærður af rík­is­sak­sókn­ara. Málið sé gam­alt og ýmis atriði þurfi að skoða nán­ar.

„En hann klár­lega kast­ar rýrð á lög­regl­una og lög­reglu­starfið. Það er síðan embætt­is­ins að meta hvort hann geti starfað áfram þar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert