Ógn við öryggi ríkisins en laus úr haldi

Landsréttur Úrskurðurinn var kveðinn upp í réttinum á mánudag.
Landsréttur Úrskurðurinn var kveðinn upp í réttinum á mánudag. mbl.is/Eggert

Lands­rétt­ur felldi á mánu­dag úr gildi gæslu­v­arðhalds­úrsk­urð Héraðsdóms Reykja­ness yfir af­brota­manni frá Als­ír, enda þótt lög­regl­an á Suður­nesj­um telji mann­inn ógn við alls­herj­ar­reglu, ör­yggi rík­is­ins og al­manna­hags­muni. Ástæðan er sú að sam­kvæmt lög­um um út­lend­inga er ekki unnt að beita gæslu­v­arðhaldi leng­ur en tvær vik­ur í senn og heim­ila lög­in ekki að það sé gert oft­ar en þris­var, eða í sex vik­ur alls. Maður­inn geng­ur nú laus.

Maður­inn kom hingað til lands frá Lissa­bon í Portúgal í lok sept­em­ber á síðasta ári, fram­vísaði fölsuðum skil­ríkj­um og var hand­tek­inn þegar upp komst. Kom þá í ljós að hann var í tíu ára end­ur­komu­banni á Schengen-svæðið.

Smyglaði sér frá Als­ír

Í úr­sk­urði héraðsdóms kem­ur fram að maður­inn hafði smyglað sér frá Als­ír og laumað sér eft­ir króka­leiðum um Evr­ópu, farið á báti til Spán­ar, þaðan til Portúgal og síðan til Íslands. Þegar upp um hann komst á Kefla­vík­ur­flug­velli sótti hann um alþjóðlega vernd. Við eft­ir­grennsl­an í Evr­ópu kom í ljós að hann hef­ur verið sak­felld­ur alls átta sinn­um, en í ein­um af fyrri gæslu­v­arðhalds­úrsk­urðum yfir mann­in­um kem­ur fram að það hafi verið í Aust­ur­ríki. Voru sak­ar­efn­in ærin; fíkni­efna­laga­brot, þjófnaður, al­var­leg­ar lík­ams­árás­ir og inn­brot. Sat hann um tíma í fang­elsi þar í landi og var síðan flutt­ur gegn vilja sín­um til Als­ír, þaðan sem hann laumaðist síðan í burtu.

Í úr­sk­urði héraðsdóms seg­ir að stjórn­völd hafi unnið að því hörðum hönd­um að afla mann­in­um ferðaskil­ríkja svo koma megi koma hon­um af landi brott. Það hef­ur ekki gengið þrauta­laust og sagt óljóst hvenær als­írsk­um stjórn­völd­um þókn­ist að gefa þau út. Eft­ir að Als­ír­ing­ur­inn kom hingað til lands í lok sept­em­ber sl. var hann úr­sk­urðaður í gæslu­v­arðhald og í fram­hald­inu dæmd­ur í eins mánaðar fang­elsi fyr­ir að hafa fram­vísað fölsuðum skil­ríkj­um. Að þeirri afplán­un lok­inni hef­ur maður­inn verið úr­sk­urðaður í gæslu­v­arðhald alls tíu sinn­um.

Að þessu sinni varð niðurstaða Lands­rétt­ar sú að á grund­velli meðal­hófs og m.t.t. þess hve lengi maður­inn hef­ur sætt gæslu­v­arðhaldi, og að hvorki gangi né reki að afla hon­um ferðaskil­ríkja og óljóst sé hvenær það muni tak­ast og koma hon­um úr landi, var ekki fall­ist á fram­hald gæslu­v­arðhalds yfir hon­um. Þá féllst Lands­rétt­ur held­ur ekki á far­bann yfir mann­in­um, en benti á heim­ild lög­reglu til að gera mann­in­um að sinna til­kynn­ing­ar­skyldu og að halda sig á af­mörkuðu svæði.

Maður­inn hef­ur eng­in tengsl við Ísland og óljóst hvernig hann get­ur fram­fleytt sér, þ.e.a.s. taki hann ekki upp fyrri siði.

Nán­ari um­fjöll­un má finna í Morg­un­blaðinu í dag. Einnig má nálg­ast hana án end­ur­gjalds í Mogg­an­um, nýju appi Morg­un­blaðsins og mbl.is.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert