„Rannsóknin er í góðum farvegi“

Gæsluvarðhald yfir konunni á að renna út næstkomandi miðvikudag.
Gæsluvarðhald yfir konunni á að renna út næstkomandi miðvikudag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Gæslu­v­arðhald yfir konu sem er grunuð um aðild að and­láti föður síns á Arn­ar­nesi fyrr í þess­um mánuði renn­ur út næst­kom­andi miðviku­dag.

Ei­rík­ur Val­berg, full­trúi í rann­sókn­ar­deild lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu, seg­ir í sam­tali við mbl.is að verið sé að meta hvort farið verði fram á áfram­hald­andi gæslu­v­arðhald yfir kon­unni, en hún er sú eina sem hef­ur stöðu sak­born­ings í mál­inu.

„Það stend­ur enn yfir vinna að safna sam­an gögn­um og taka skýrsl­ur í mál­inu. Rann­sókn­in er í góðum far­vegi en hún er tíma­frek. Við höf­um tólf vik­ur til að ljúka rann­sókn máls­ins og við stefn­um á að klára hana fyr­ir þann tíma,“ seg­ir Ei­rík­ur.

RÚV greindi frá því í síðustu viku að kon­an neitaði sök í mál­inu en Ei­rík­ur seg­ist ekki geta tjáð sig um hvað kon­an hafi sagt í skýrslu­tök­um.

Maður­inn sem lést hét Hans Roland Löf. Hann var tannsmiður og fædd­ur 1945. Hann var bú­sett­ur í Súlu­nesi á Arn­ar­nesi ásamt eig­in­konu sinni og dótt­ur þeirra, Mar­gréti Höllu Hans­dótt­ur, sem sit­ur í gæslu­v­arðhaldi.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert