Stjórnsýslan hafi brugðist Ólöfu

Vilhjálmur Árnason formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar telur bagalegt að borgari …
Vilhjálmur Árnason formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar telur bagalegt að borgari upplifi sig varnarlausan við meðferð stjórnsýslunnar á erindi hans. mbl.is/Karítas

Vil­hjálm­ur Árna­son, formaður stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd­ar þings­ins, tel­ur stjórn­sýsl­una hafa brugðist Ólöfu Björns­dótt­ur í meðför­um á er­indi henn­ar er varðaði þáver­andi barna- og mennta­málaráðherra sem síðar leiddi til af­sagn­ar ráðherr­ans.

„Það er nátt­úru­lega ástæðan þess að við telj­um okk­ur knú­in til þess að fjalla áfram um þetta mál, að þegar borg­ar­inn leit­ar til eins helsta trúnaðaraðila þjóðar­inn­ar, for­sæt­is­ráðuneyt­is­ins, og finnst vera á sér brotið og heyr­ir for­sæt­is­ráðherr­ann segja í pontu Alþing­is að hún sé að fara með rangt mál, er­indi henn­ar er hafnað, en samt er upp­lýst um það og per­sónu­upp­lýs­ing­ar veitt­ar og annað slíkt. Það er ekki gott ef borg­ar­inn finn­ur sig varn­ar­laus­an gagn­vart meðferð síns máls,“ sagði Vil­hjálm­ur í sam­tali við mbl.is að lokn­um fundi nefnd­ar­inn­ar vegna meðferðar á fyrr­nefndu er­indi Ólaf­ar.

Hann seg­ir for­sæt­is­ráðherra hafa verið auðfús­an til þess að svara spurn­ing­um og svara mörg­um þeirra vel, en eft­ir sitji þó nokkr­ar spurn­ing­ar.

„Það komu kannski ekki full­nægj­andi svör við öllu, eins og spurn­ing­unni um það hvernig for­sæt­is­ráðherra gat full­yrt í pontu Alþing­is að það ekki hafi verið óskað eft­ir trúnaði og trúnaði ekki lofað.“

„Mér fannst for­sæt­is­ráðherra setja meiri fyr­ir­vara um það hvort það var gert eða ekki á fund­in­um í dag en þegar hún svaraði fyr­ir­spurn Hild­ar Sverr­is­dótt­ur á þing­inu,“ seg­ir Vil­hjálm­ur.

Þá sé enn óljóst í hans huga hvenær trúnaður rík­ir um er­indi og hvenær ekki.

„Það eru ein­hverj­ar sveifl­ur á því hvenær við erum að tala um trúnað, og hvenær upp­lýs­inga­skyld­an á við og hvenær ekki, og það er enn svo­lítið óljóst hvenær við erum að fjalla um stjórn­sýslu­lög­in, upp­lýs­inga­lög­in eða per­sónu­vernd­ar­lög­in.“

Hann tel­ur næstu skref meðal ann­ars vera að kalla lög­spek­inga fyr­ir nefnd­ina til þess að fá ein­hver þess­ara atriða á hreint.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert