Skammt suðaustur af Hornafirði er lægð sem stjórnar veðrinu í dag með vestlægum áttum, yfirleitt á bilinu 5-13 m/s með rigningu á Norðurlandi en súld eða dálítilli rigningu með köflum vestantil. Hiti 5 til 10 stig, en á Suðausturlandi og Austfjörðum léttir til með hita að 15 stigum.
Á höfuðborgarsvæðinu verður vestan 5-10 m/s, skýjað og dálítil væta af og til. Dregur úr vindi og léttir til uppúr hádegi á morgun. Hiti 4 til 10 stig.
Á morgun kemur lítil lægð yfir Grænlandsjökul og fer austur með Norðurlandi með norðan 3-8 m/s, en 8-13 austanlands. Rigning eða slydda á Norður- og Austurlandi og hiti 2 til 7 stig þar. Birtir upp sunnan heiða eftir hádegi með hita að 12 stigum.
Annað kvöld og á laugardag færist hæð yfir landið og því verður hægur vindur og léttskýjað um mest allt land um helgina.