Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út í morgun á Hverfisgötu vegna manns sem var sagður vopnaður skotvopni í íbúðarhúsnæði. Búið er að handtaka manninn og aflétta götulokunum.
Þetta segir Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.
„Það var tilkynnt um aðila sem væri vopnaður skotvopni í íbúð og það er búið að handtaka aðila. Málið er bara í vinnslu hjá okkur,“ segir Ásmundur.
Eins og mbl.is greindi frá fyrst þá var Hverfisgötu, Lindargötu, Vitastíg og Klapparstíg lokað vegna aðgerðarinnar. Nú er búið að aflétta götulokunum.
Ásmundur segir að íbúðin hafi verið við Hverfisgötu en vill ekki svara því hvort að maðurinn hafi raunverulega verið vopnaður skotvopni.
„En tilkynningin hljómaði að aðili væri vopnaður skotvopni og það er búið að handtaka aðilann og málið er í rannsókn.“
Engum skotum var hleypt af.