Samfylkingin brennuvargar en Framsókn slökkviliðið

Einar Þorsteinsson, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri.
Einar Þorsteinsson, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri. mbl.is/Eyþór

Frá­bært en ekki óvænt að sjá góðan rekstr­araf­gang hjá borg­inni á því ári sem við í Fram­sókn stýrðum borg­inni,“ seg­ir í Face­book-færslu Ein­ars Þor­steins­son­ar, odd­vita Fram­sókn­ar­flokks og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra, um rekst­ur Reykja­vík­ur­borg­ar 2024 sem var kynnt­ur í dag. 

Kom þar fram að rekst­ur A-hluta Reykja­vík­ur­borg­ar var já­kvæður um 4,7 millj­arða. Þá var rekstr­arniðurstaða A- og B-hluta borg­ar­inn­ar fyr­ir árið 2024 sam­an­lagt já­kvæð um 10,7 millj­arða króna. 

Í færsl­unni seg­ir Ein­ar að bet­ur megi ef duga skal. 

„Áfram þarf að bæta þjón­ustu við íbúa og tryggja að borg­in eigi fyr­ir fjár­fest­ing­um í leik- og grunn­skól­um, sam­göngu­mál­um, íþrótt­um og menn­ingu. 

Á sama tíma er hjákát­legt að sjá brennu­varg­ana í fjár­mál­um borg­ar­inn­ar, borg­ar­stjóra Sam­fylk­ing­ar­inn­ar sem neitaði að skera niður, halda blaðamann­fund til að kynna ár­ang­ur­inn eft­ir að Fram­sókn tókst að slökkva eld­ana.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert