„Ég eiginlega skil hann ekki. Þetta er náttúrulega þannig að við kaupum bara þrotabúið með nafni og öllu. Þar af leiðandi hlýtur nafnið að fylgja með,“ segir Þór Pálsson, skólastjóri Rafmenntar.
Vísir greindi frá því í gær að Böðvar Bjarki Pétursson, stofnandi Kvikmyndaskóla Íslands, myndi ekki hika við að lögsækja Rafmennt myndi skólinn nota nafn Kvikmyndaskólans eða námskrá hans þar sem um hugarsmíð Böðvars væri að ræða.
Rafmennt tók við rekstri Kvikmyndaskólans eftir að skólinn varð gjaldþrota. Nemendur skólans hófu kennslu að nýju í höfuðstöðvum Rafmenntar síðasta mánudag.
Þór vísar orðum Böðvars til skiptastjóra þrotabús skólans. Þór hefur sjálfur sent skiptastjóranum fyrirspurn vegna málsins en ekki fengið svar enn sem komið er.
Aðspurður segir Þór námskrá skólans vera opinbera. Böðvar hafi fengið hana samþykkta hjá menntamálaráðuneytinu á sínum tíma og að hún sé gefin út á vef Miðstöðvar menntunar- og skólaþjónustu.
„[Böðvar] hefur birt hana líka á vef Kvikmyndaskólans og þar sem ég kaupi þetta allt saman þá fylgir það bara með,“ segir Þór og heldur áfram:
„Námskrá sem er samþykkt er ekki höfundarréttavarin. Hún er ekki skrifuð handa einhverjum skóla. Þó svo að hann hafi gert það þá er það þannig að þegar ráðuneytið er búið að samþykkja hana þá má hvaða skóli sem er taka hana upp sem vill kenna hana.“
Þá segir hann Rafmennt ætla að halda námskránni og að þeir kennarar sem hafi verið að kenna hjá Kvikmyndaskólanum kenni áfram sömu greinar og þeir gerðu áður.
„Það er ekki dregið úr neinu hjá okkur.“
Hann segir kennslu hafa gengið vel síðan hún hófst að nýju og að nemendur séu ánægðir. Skólinn sé í miklu samstarfi við Stúdíó Sýrland þar sem nemendur eiga aðgang að þeim græjum sem þeir þurfa.
„Við höldum áfram góðu samtali við nemendur. Ég ætla að hitta þau á miðvikudagsmorgun og spyrja þau hvernig þetta gangi og svona. Þannig við höldum bara áfram, fulla ferð.“