Fyrsti dagur Jazzþorpsins á Garðatorgi í Garðabæ gekk vonum framar í gær. Hátíðin var sett klukkan 17 og heldur áfram í dag og á morgun.
Bæjarhátíðin Jazzþorpið í Garðabæ er haldin í 3. sinn en torginu hefur verið breytt í tónlistar- og upplifunarhátíð fyrir alla fjölskylduna.
„Húsgögn og smámunir frá Góða hirðinum mynda stofur um allt torg sem gestir geta setið í, notið tónleika og samveru og um leið keypt öll húsgögn og gripi en ágóðinn rennur til Krafts,“ segir í tilkynningu.
Sjá má dagskrá hátíðarinnar hér.