„Við erum að fara að mála pottana í nýjum lit og bæta við sturtum númer tvö, við stækkuðum húsið 2023 og unnum aðeins í þessu í fyrra líka og núna er kominn tími til að leggja lokahönd á þetta,“ segir Jónas Snæbjörnsson, primus motor endurbóta á Pollinum á Tálknafirði, þessari vinsælu náttúrulaug í Sveinseyrarhlíð skammt utan þéttbýlissvæðis fjarðarins.
Vatnið í Pollinum kemur úr borholu sem boruð var árið 1977 þar á svæðinu, en nú verður Pollurinn lokaður um nokkurra daga skeið vegna framkvæmdanna. Kveður Jónas tímabil lokunarinnar því miður örlítið lengra en á horfðist í fyrstu.
„Til stóð að lokað yrði til 6. maí, en nú lítur út fyrir að það verði fram að helgi, jafnvel fram á sunnudag í næstu viku. Við ætlum að klára þetta almennilega svo við þurfum ekki að eiga við þetta meira á þessu ári,“ segir Jónas enn fremur og svarar því aðspurður að viðhald Pollsins þurfi að fara fram um það bil árlega auk þess sem hann sé þrifinn á tveggja ára fresti þar sem enginn klór fari í Pollinn.
Eru Akureyringar ekkert að fetta fingur út í nafnið, verandi með sinn eigin pott?
„Nei nei, alla vega hef ég ekki heyrt af því,“ svarar Jónas með aðkenningu að hlátri og segir að slíkum aðfinnslum yrði enda mætt af hörku. „Við myndum þá bara gera það sama á móti, sá Pollur er jafnfjarri okkur og þessi er þeim,“ segir Jónas Snæbjörnsson að lokum.