Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sjúkralið var kallað á skemmtistað í miðbænum vegna einstaklings sem svaf ölvunarsvefni inni á baðherbergi.
Í dagbók lögreglu segir að er sjúkralið reyndi að ræða við manninn brást hann ókvæða við og reyndi að slást við viðbragðsaðila.
Einstaklingurinn var handtekinn og fluttur á lögreglustöð þar sem hann var vistaður þar til rennur af honum.
Þá barst tilkynning um ölvaðan mann sem neitaði að yfirgefa strætisvagn.
Hann fór hins vegar sína leið eftir tiltal lögreglu.