„Þetta er í blóðinu,“ grínast Snjólaug Vera Jóhannsdóttir þegar hún er spurð út í söngáhuga sinn. Hún á ekki langt að sækja sönghæfileikana því Vilhjálmur Vilhjálmsson söngvari var afi hennar.
Snjólaug fer með hlutverk prinsessunnar Fíónu í uppfærslu söngleikjadeildar Söngskóla Sigurðar Demetz á söngleiknum Shrek í Borgarleikhúsinu um þessar mundir. „Þetta er svo rosalega flott tónlist og falleg saga,“ segir Snjólaug.
Söngleikurinn var upphaflega sýndur á Broadway árið 2008 og hefur farið sigurför um heiminn síðan en uppfærsla söngleikjadeildarinnar er í leikstjórn Orra Hugins Ágústssonar.
„Þetta er söngleikur byggður á sívinsælu teiknimyndunum um Shrek. Verkið fylgir í raun sögu fyrstu bíómyndarinnar þegar Shrek hittir Asna og þeir fara saman að bjarga Fíónu prinsessu og hitta allar ævintýraverurnar á leiðinni,“ segir Snjólaug í samtali við Morgunblaðið.
Einhverjir kunna við fyrstu sýn að afskrifa söngleik um tröllið Shrek sem ómerkilega barnasýningu en Snjólaug segir aldeilis ekki ástæðu til þess, tónlistin sé mjög falleg og sagan sömuleiðis. Þá sé um að ræða einstaklega hentuga sýningu fyrir nemendahóp sem þennan en allir flytjendur stunda nám við Söngskóla Sigurðar Demetz.
„Þetta er mjög flott ensemble-sýning. Það eru allir sem fá hlutverk og margir sem fá mjög mikið að gera í einu,“ segir Snjólaug og bætir við:
„Við erum 19 í leikhópnum sem erum að setja upp þessa sýningu og eiginlega allir eru að leika fleiri en eitt hlutverk. Svo vorum við leikhópurinn líka í því að búa til og redda öllum búningum, leikmynd og leikmunum.“
Það hefur því verið að nógu að huga í aðdraganda sýningarinnar en Snjólaug sem er líka í búningadeild segir að útbúa hafi þurft um það bil 100 búninga.
Aðeins þrír leikarar fara með sama hlutverk allt verkið en meðal þeirra er Snjólaug. Spurð hvernig upplifunin af því að leika Fíónu prinsessu, ástarviðfang Shreks, hafi verið hingað til lýsir Snjólaug því sem ánægjulegri reynslu.
„Hún er rosalega skemmtilegur karakter og mjög mikill karakter. Það var kannski helst það sem ég þurfti að komast yfir, að gera hana alltaf stærri og stærri í leiknum. En svo eru líka tregafull augnablik í þessu, það liggur á henni bölvun og hún þarf að kljást við að finnast hún ekki falleg í því formi sem hún er. En svo hittir hún Shrek og kemst að því að það sé allt í lagi.“
Í þessu samhengi segir Snjólaug að verkið eigi í raun mikið erindi: „Það fjallar mikið um það að vera sáttur við hvernig maður er því það er ekki hægt að breyta því. Það mega allir vera mismunandi.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Snjólaug tekur þátt í söngleikjauppsetningum Söngskóla Sigurðar Demetz en áður hefur hún leikið í Ljósku í gegn sem er söngleikur byggður á gamanmyndinni Legally Blonde og í söngleiknum Eitthvað rotið. Hún segir hálfgerða tilviljun hafa ráðið því að hún sótti um í söngleikjadeildinni til að byrja með.
„Ég hafði verið í klassísku söngnámi áður en fann mig ekki alveg þar og hætti í nokkur ár. Svo sé ég allt í einu auglýsingu á Facebook frá Söngskóla Sigurðar Demetz um að nokkur pláss séu laus í söngleikjadeildinni. Ég ákveð bara að sækja um, fer í prufu viku seinna og er svo komin inn viku eftir það. Þetta var í rauninni smá skyndiákvörðun og tilviljun, en mjög góð tilviljun,“ segir Snjólaug.
Spurð hvernig söngáhuginn hafi kviknað segir hún að það hafi gerst mjög snemma.
„Ég er búin að vera að syngja síðan ég var fimm ára. Þá byrjaði ég í kór í Langholtskirkju en ég hef verið þar síðan og er enn þá virk í kórastarfinu í kirkjunni. Þannig kemst ég inn í klassíska sönginn.“
Snjólaug þarf ekki að sækja sönghæfileikana langt en Vilhjálmur Vilhjálmsson söngvari var afi hennar.
„Þetta er í blóðinu,“ grínast Snjólaug þegar hún er spurð út í þessa tengingu en svarar því játandi að þetta hafi haft einhver áhrif á hana og söngferilinn.
Þá bendir hún á að söngurinn sé líka víðar í fjölskyldunni.
„Pabbi syngur líka og hefur verið mjög hvetjandi í öllu sem ég geri og hefur fylgt mér í gegnum þetta,“ segir Snjólaug og bætir við:
„Ég hef líka fengið ýmis tækifæri til að syngja og koma fram á sviði sem ég er mjög þakklát fyrir.“
Aðspurð segir Snjólaug að áhuginn á söngleikjum hafi byrjað að kvikna á unglingsárunum þegar hún fékk hálfgerða þráhyggju fyrir bandaríska söngleiknum Hamilton en að áhuginn hafi ekki náð hámarki fyrr en hún hóf nám í söngleikjadeildinni.
Þá varð ekki aftur snúið en Snjólaug, sem útskrifaðist nýverið úr almennum málvísindum frá Háskóla Íslands, stefnir á að halda til Bretlands í haust þar sem hún mun sækja leiklistarnám með áherslu á söngleiki.
Spurð hvort hún ætli þá að leggja sönginn og leiklistina fyrir sig segist hún vonast til að geta gert það.
Þá mun hún búa vel að náminu í söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Demetz.
„Þetta hefur verið svo styrkjandi og eflandi og ég hef bætt mig mikið í framkomu. Svo lærir maður líka samhliða söngnum og leiklistinni mjög mikið á því að vinna svona náið með fólki, um samskipti og það að vinna í hóp. Maður verður að vera opinn fyrir öllu,“ segir Snjólaug um námið í söngskólanum.
Uppsetning söngleikjadeildarinnar á söngleiknum Shrek var sem fyrr segir frumsýnd fyrir fullu húsi á fimmtudag en enn eru þrjár sýningar á verkinu eftir.
Næsta sýning verður í kvöld, sunnudag, kl. 20 og lokasýning miðvikudaginn 7. maí kl. 20. Miðar fást á tix.is.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.