Um 100 konur í Léttsveit Reykjavíkur

Gísli Magna og Arnhildur Valgarðsdóttir fara fyrir kór og hljómsveit.
Gísli Magna og Arnhildur Valgarðsdóttir fara fyrir kór og hljómsveit. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Léttsveit Reykja­vík­ur fagn­ar 30 ára af­mæli á ár­inu og held­ur viðamikla af­mælis­tón­leika í Reykja­vík, á Ak­ur­eyri og Raufar­höfn á næst­unni. Kór­inn kem­ur fyrst fram í Há­skóla­bíói sunnu­dag­inn 11. maí og hefjast tón­leik­arn­ir klukk­an 17.00. Sungið verður í pallí­ett­um og glimmeri frá kl. 20.00 fimmtu­dag­inn 15. maí í Ak­ur­eyr­ar­kirkju og einnig í fé­lags­heim­ili Raufar­hafn­ar frá kl. 17.00 laug­ar­dag­inn 17. maí.

„Við leggj­um meira í þessa tón­leika en alla jafna vegna tíma­mót­anna,“ seg­ir Ásdís Þór­halls­dótt­ir, sem sungið hef­ur í kórn­um í sam­tals sex ár. Dag­skrá­in sé viðameiri og lengri en venju­lega og eng­ir sér­stak­ir gesta­söngv­ar­ar komi fram held­ur verði kór­inn í sviðsljós­inu með hljóm­sveit­inni.sem spil­ar með hon­um. „Við höf­um æft stíft í vet­ur og dag­skrá­in er sann­kölluð af­mæl­is- og gleðisprengja.“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert